Matseðillinn

By 29/10/2008 Uncategorized

Nú liggur fyrir matseðill fjáröflunarmálsverðar Friðarhúss n.k. föstudags. Rúbý frá Singapúr eldar, en í fyrri skipti sem hún hefur séð um eldamennskuna hefur húsið troðfyllst.

Matseðillinn:

* Nautahakk með gulu karrý
* Blandaðar baunir í kókossósu
* Hvítkálsréttur með eggjum og sesamolíu
* Blandað saltat með hnetusósu
* Borið fram með hrísgrjónum, brauði og rækjuflögum

Verð: 1.500 krónur.

Til viðbótar við áður auglýsta dagskrá mun baráttumaðurinn skeleggi Lárus Páll Birgisson flytja stutta huvekju.