Jólahlaðborð Friðarhúss, 28. nóvember

By 24/11/2014 Uncategorized

Fullveldisfögnuður SHA, hið rómaða jólahlaðborð Friðarhúss, verður haldið föstudagskvöldið 28. nóvember nk. Guðrún Bóasdóttir (Systa) sér um matseldina.

Glæsilegt hlaðborð:

* Heimalöguð sænsk jólaskinka með kartöflusalati, og sinnepssósu

* Rauðkál og rauðrófur

* Heimagerð lifrakæfa og heimagert rúgbrauð

* Reykt nautatunga með piparrótarrjóma

* Kryddsíld 

* Karrýsíld

* Rækjufrauð

* Grænmetisbuff

* Kaffi og smákökur

Að borðhaldi loknu tekur við menningardagskrá. Rithöfundarnir Ingibjörg Reynisdóttir og Davíð Stefánsson lesa úr nýjum verkum. Jón Svavar Jósefsson syngur.

Verð kr. 2.000. Borðhald hefst kl. 19.