Það verður miðausturlenskt þema í matseðli fjáröflunarmálsverðarins í Friðarhúsi föstudagskvöldið 30. janúar. Daníel Haukar Árnason úr miðnefnd SHA eldar og leitar í smiðju kokka frá Jerúsalem af ýmsum trúarbrögðum.
Matseðill:
* Heimabakað Jerusalem-brauð
* Rauðrófusósa
* Hummus
* Graskersmauk
* Ofnbakaðar sætar kartöflur með fíkjum og chili
* Saffran hrísgrjón með pistasíum og trönuberjum
* Fyllt eggaldin með lambi
* Arak kjúklingur með mandarínum og fennel
* Velkryddaðar steiktar kjúklingabaunir
* Tahini smákökur
* Möndlu-og mandarínusýrópskaka
Að borðhaldi loknu mun trúbadorinn Hemúllinn taka lagið. Verð kr. 2.000. Sest verður að snæðingi kl. 19. Allir velkomnir.