Hver er George Bush eldri?

By 29/06/2006 Uncategorized

bushsrhappyFram hefur komið í fréttum að George Bush, fyrrum Bandaríkjaforseti, sé væntanlegur hingað til Íslands í einkaerindum. Forseti Íslands hefur boðið honum til málsverðar að Bessastöðum.

Að þessu tilefni er rétt að rifja upp feril Bush á valdastóli í Bandaríkjunum. Sú saga er ófögur.

Elías Davíðsson heldur erindi um Bush og valdatíma hans á almennum félagsfundi SHA sunnudagskvöldið 2. júlí kl. 20 í Friðarhúsi. Fundarstjóri verður Þórður Sveinsson. Allir velkomnir.