Gæluverkefni sett á ís?

By 29/10/2008 Uncategorized

images 04Þær gleðilegu fregnir hafa nú borist úr utanríkisráðuneyti Íslands að til standi að slá af niðurgreiddar herflugsæfingar Natóherja hér á landi, sem hlotið hefur þann uppskrúfaða titil “loftrýmiseftirlit”. Samtök hernaðarandstæðinga hafa alla tíð gagnrýnt ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa að heræfingum þessum og bent á hversu fráleit sóun þær séu á skattfé borgaranna.

SHA hafa bent á að æfingar Natóflugsveita hafi engu jákvæðu hlutverki að gegna fyrir íslenskt samfélag og tryggi hvorki öryggi lands né þjóðar með neinum hætti. Sú kenning hefur verið reifuð á þessum vettvangi að áhugi íslenskra stjórnvalda á slíkum æfingum byggist fyrst og fremst á flottræfilshætti og þeirri hugmynd að til að vera “þjóð meðal þjóða” þurfi Íslendingar að geta státað af vígvélum – eða í það minnsta fengið þær leigðar eins og nokkrar vikur í senn.

Viðbrögð utanríkisráðuneytisins nú renna stoðum undir þessa kenningu. Þegar harðnar á dalnum í efnahagslífinu, reynast stjórnvöld skyndilega fús til að viðurkenna tilgangsleysi “loftrýmiseftirlitsins”. Heræfingar þessar voru dýr munaður – gæluverkefni sem vígfús stjórnvöld gátu leyft sér á þenslutímum. Blessunarlega var slökkt á hreyflum herþotna ríkisstjórnar Íslands um leið og einkaþotur útrásarvíkinganna voru lagðar til hliðar.

Rökrétt næsta skref er að íslensk stjórnvöld leiðrétti mistök sín frá vormánuðum og leysi upp nýstofnaða Varnarmálastofnun.

Stefán Pálsson