Friðargöngur á Þorláksmessu

By 19/12/2014 December 21st, 2014 Uncategorized

Að venju stendur Samstarfshópur friðarhreyfinga fyrir friðargöngu í Reykjavík þann 23.desember. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17:45 og leggur gangan af stað klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðarhreyfingarnar selja kerti fyrir göngufólk á Hlemmi. Í lok göngu verður fundur við Austurvöll þar sem Eyrún Ósk Jónsdóttir, flytur ávarp. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur í göngunni og við lok fundar undir stjórn kórstjórans Þorgerðar Ingólfsdóttur. Fundarstjóri er Kolbeinn Óttarsson Proppé.

Friðargangan á Ísafirði leggur af stað frá Ísafjarðarkirkju klukkan 18:00 og er gengið niður á Silfurtorg. Ræðumaður verður Hrefna Magnúsdóttir.

Á Akureyri stendur Friðarframtak fyrir blysför í þágur friðar Akureyri. Hún hefst klukkan 20:00 frá Samkomuhúsinu Hafnarstræti og er gengið út á Ráðhústorg. Ræðumenn eru þær Brák Jónsdóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri. Rakel Sigurðardóttir syngur.


Samstarfshópur friðarhreyfinga minnir á að málstaður og rök friðarsinna skipta jafn miklu máli nú og fyrir þrjátíu árum. Stöðugt berast fregnir af ofbeldisverkum þjóða á milli og innan samfélaga. Óheyrilegum fjárhæðum er enn sóað í vígvæðingu og ekkert lát virðist á hernaðarátökum í heiminum.

Samstarfshópur friðarhreyfinga:
Félag leikskólakennara.
Friðar- og mannréttindahópur BSRB
Menningar og friðarsamtökin MFÍK
Samhljómur menningarheima
Samtök hernaðarandstæðinga
SGI á Íslandi mannúðar og friðarsamtök búddista