Friðlýsing Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja

By 10/11/2010 Uncategorized

7. október var tekið fyrir á Alþingi frumvarp til laga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Umræðulaust var því vísað til utanríkismálanefndar þar sem það er nú til umfjöllunar. Samtök hernaðarandstæðinga hafa sent nefndinni umsögn um málið en frestur til að skila umsögnum rann út 5. nóvember.

Þetta frumvarp er í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar: „Ísland verður friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum og íslensk stjórnvöld munu beita sér fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi,“ en flutningsmenn frumvarpsins eru úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum. Þeir eru: Árni Þór Sigurðsson, Álfheiður Ingadóttir, Baldvin Jónsson, Björn Valur Gíslason, Eygló Harðardóttir, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Hjörvar, Höskuldur Þórhallsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Mörður Árnason, Ólafur Þór Gunnarsson, Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Þráinn Bertelsson.

Frumvarp í þessa veru er nú lagt fram í tíunda sinn. Stundum hefur það ekki verið tekið til umræðu og stundum látið daga upp í utanríkismálanefnd. Síðast var það lagt fram í mars 2009, en þá gafst ekki tími til að afgreiða það, enda stutt til þingloka og nýrra kosninga. Það er vonandi að ríkisstjórnin verði ekki hrakin frá áður en þetta mál er í höfn. Aldrei fyrr höfum við verið svo nærri því.

Sjá nánar frétt á Friðarvefnum 17. mars 2009.

Fumvarp til laga um friðlýsingu Íslands fyrir kjarnorkuvopnum og bann við umferð kjarnorkuknúinna farartækja. Frumvarpið og ferill málsins.