Freistandi febrúarmálsverður

By 23/02/2015 Uncategorized

Næsti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudaginn 27. febúar nk. Það verða félagar í Alþýðufylkingunni sem sjá um eldamennskuna að þessu sinni. Matseðill:

* Lasagne að hætti hússins

* Grænmetislasagne að hætti hússins

* Salat og heimabakað brauð með hvítlaukssmjöri að hætti hússins

* Kaffi, gulrótarkaka og súkkulaðikaka í eftirrétt

Að borðhaldi loknu mun hinn frábæri trúbador Skúli mennski skemmta gestum.

Borðhald hefst kl. 19. Verð kr. 2.000. Allir friðarsinnar velkomnir.