Frábær skemmtidagskrá á friðarmálsverði

By 25/01/2007 Uncategorized

Humar    S  rlandiFjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður kl. 19 á föstudagskvöld, eins og kynnt hefur verið hér á síðunni. Birna Þórðardóttir eldar dýrindis lasagne, sem borið verður fram með nýbökuðu brauði og hummus.

Glæsileg skemmtidagskrá verður í boði meðan á borðhaldi stendur og eftir það:

Smásveit Birnu Þórðar treður upp:
* Magnús Einarsson á nostalgíu
* Tómas Tómasson á lostagígju

Kristján Eiríksson ræðir um “hið hættulega tungumál”

Þorvaldur Örn og Gunnar Guttormsson taka lagið með matargestum

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Máltíðin kostar litlar 1.500 krónur.