Fjáröflunarmálsverður maímánaðar

By 21/05/2012 June 5th, 2012 Uncategorized

Síðasti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss fyrir sumarfrí verður haldinn föstudagskvöldið 25. maí. Guðrún Bóasdóttir (Systa) eldar.

Matseðill:

* Nautakjöt í hnetusósu borið fram með hrísgrjónum og tælensku rauðkálssalati

* Saltfisksalat

* Rabarbaraþeytingur (rabarbari bakaður í ofni með vanillu og borinn fram með rjóma)

Vilborg Dagbjartsdóttir sér um menningardagskrá.

Borðhald hefst kl. 19. Verð kr 1500. Allir velkomnir.