Fjáröflunarmálsverður janúarmánaðar

By 24/01/2016 Uncategorized

Fyrsti fjáröflunarmálsverður ársins 2016 verður í Friðarhúsi föstudagskvöldið 29. janúar n.k. Kokkarnir kvöldsins verða sómaparið Benóný Harðarson og Iðunn Garðarsdóttir. Matseðillinn verður með flóknara móti: grænmetisréttur, fiskréttur og kjötréttur.

  • Grænmetis-lasagne
  • Bleikja í teriyaki og sesam
  • Nauta ossobucco kássa
  • Hrísgrjón og grænt salat.

Að borðhaldi loknu munu Ragnheiður Helga Bergmann Hafsteinsdóttir og Sveinbjörn Hafsteinsson flytja tónlistaratriði.

Húsið opnar að venju kl. 18:30 en borðhald hefst á slaginu 19:00. Verð kr. 2.000. Öll velkomin.