Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss

By 24/10/2007 Uncategorized

KokkurHinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 26. október og hefst að venju kl. 19.

Á boðstólum verður haustsúpa Láru Jónu, sneisafull af bestu og ferskustu afurðum. Tvær tegundir verða í boði – önnur sérstaklega ætluð grænmetisætum.

Skemmtiatriðin verða heldur ekki af verri endanum, en félagar úr Kvæðamannafélaginu Braga mæta og kveða.

Maturinn kostar sem fyrr 1.500 kr.