Hinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 26. október og hefst að venju kl. 19.
Á boðstólum verður haustsúpa Láru Jónu, sneisafull af bestu og ferskustu afurðum. Tvær tegundir verða í boði – önnur sérstaklega ætluð grænmetisætum.
Skemmtiatriðin verða heldur ekki af verri endanum, en félagar úr Kvæðamannafélaginu Braga mæta og kveða.
Maturinn kostar sem fyrr 1.500 kr.