Ferðasaga frá fjarlægu landi

By 19/11/2006 Uncategorized

JohannBjornssonNokkuð er um að vinir og velunnarar Friðarhúss fái þar inni með fundi um ýmis efni, gegn lágri leigu og loforði um góða umgengni.

Í haust hefur hópur nokkurra áhugamanna um alþjóðamál komið saman og rætt um ýmis málefni. N.k. þriðjudagskvöld mun heimspekingurinn Jóhann Björnsson mæta og segja frá ferð sinni til Norður-Kóreu, en sárafáir vesturlandabúar hafa heimsótt þetta land sem talsvert er í heimsfréttunum þessi misserin.

Á heimasíðu Jóhanns segir um fundinn:

Norður Kórea hefur heldur betur verið að hrista upp í alþjóðasamfélaginu að undanförnu með kjarnorkutilraunum sínum og sérkennilegri afstöðu í samfélagi þjóðanna. Við fáum sjaldan fréttir af þesu samfélagi og þegar þær berast snúast þær yfirleitt um hungursneið og persónudýrkun.

Fáir íslendingar hafa sótt landið heim enda er landið ekki þekkt fyrir að vera nein ferðamannaparadís.

Þegar nokkrir einstaklingar komust að því að ég hafi sótt landið heim 1989 og tekið býsna mikið af myndum varð úr að ég myndi sýna myndirnar og segja frá því sem fyrir augu bar, enda hefur samfélagið ekki breyst svo mikið síðan.

Næstkomandi þriðjudag 21. nóvember mun verða myndasýning frá för minni og spjall um Norður -Kóreu í Friðarhúsi við Snorrabraut kl. 20.00. Allir eru hjartanlega velkomnir.