Eldamennskan á hinum mánaðarlega fjáröflunarmálsverði Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi, föstudaginn 24. febrúar, verður að þessu sinni í höndum bræðranna Gísla og Friðriks Atlasona. Matseðillinn verður sem hér segir:
- Avanti o popolo, Lasagne rossa
- Gómsæt grænmetissúpa friðarsinnans
- Með þessu er borið fram ljúfbakað brauð og salat
- Súkkulaðikaka lífsins ásamt nýlöguðu kaffi í eftirrétt.
Skemmtidagskrá verður kynnt síðar.
Verð kr. 2.000. Borðhald hefst kl. 19. Öll velkomin