Skip to main content

40 ár fyrir friði

By Uncategorized

Samtök hernaðarandstæðinga rekja sögu sína aftur til Glæsibæjarfundarins sem haldinn var 16. maí árið 1972. Samtökin fagna því 40 ára afmæli og munu að því tilefni standa fyrir samkomu í Iðnó að kvöldi miðvikudagsins 16. maí (kvöldið fyrir uppstigningardag).

Fjöldi tónlistarmanna og annars listafólks mun koma fram á dagskránni, þar sem lög sem tengjast sögu friðarbaráttunnar verða í aðalhlutverki. Meðal flytjenda má nefna: Bjartmar Guðlaugsson, félaga úr Þokkabót, Heiðu trúbador og Einar Má & Blágresi. Árni Björnsson mun rifja upp aðdragandan að stofnun SHA.

Dagskráin hefst stundvíslega kl. 20, en húsið verður opnað 19:30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis, en söfnunarföturnar verða vitaskuld á sínum stað.

Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum

By Uncategorized

Opinn félagsfundur MFÍK verður miðvikudaginn 9. Maí kl. 19 í Friðarhúsi. Þær Harpa Stefánsdóttir, formaður, og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, varaformaður MFÍK, segja frá heimsþingi WIDF (Alþjóðasamtök lýðræðissinnaðra kvenna) sem haldið var í Brasilíu í apríl.

Léttur kvöldverður seldur á 1500 kr. í upphafi fundar. Húsið opnar kl. 18.30.

Takið endilega með ykkur gesti. Allir velkomnir.

1. maí kaffi SHA

By Uncategorized

Hið rómaða 1. maí kaffi SHA verður haldið í Friðarhúsi á baráttudegi verkalýðsins og hefst kl. 11. Það stendur fram að kröfugöngu verkalýðshreyfinganna sem leggur af stað frá Hlemmi.

Líkt og undanfarinn aldarfjórðung er kaffigjald kr. 500. Allir velkomnir.

Málsverður aprílmánaðar

By Uncategorized

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss, sá fyrsti eftir stórtækar framkvæmdir á ytra byrði hússins, verður haldinn föstudagskvöldið 27. apríl n.k. og hefst borðhald að venju kl. 19.

Matseldin verður að þessu sinni sameiginlegt verkefni Láru Jónu Þorsteinsdóttur, Þorvaldar Þorlvaldssonar og Alvins Níelssonar, félaga í SHA.

Matseðill:

* Víðfræg fiskisúpa

* Grænmetissúpa

Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar. Verð kr. 1.500.

VÍK og MFÍK í Friðarhúsi 18. apríl

By Uncategorized

MFÍK og VÍK (VInáttufélag Íslands og Kúbu efna til sameiginlegs fundar í Friðarhúsi miðvikudagskvöldið 18. apríl n.k. kl. 19.

Margrét Guðmundsdóttir, Eyjólfur Eyvindarson og fleiri segja frá og sýna myndir frá dvöl sinni á Kúbu í desember síðastliðnum.

Léttur kvöldverður seldur í upphafi fundar.

Allir velkomnir.