Skip to main content

Skömmin

By Uncategorized

Tíu ár eru um þessar mundir frá innrásinni í Írak. Innrásin og vargöldin sem braust út í landinu í kjölfarið olli miklum hörmungum. Varfærnustu áætlanir segja fjölda fórnarlamba rúmlega 100 þúsund. Aðrir telja töluna margfalt hærri. Gríðarlegur fjöldi fólks er enn á vergangi vegna stríðsins og enn sér ekki fyrir endann á afleiðingum þess, til að mynda varð óöldin í Írak til að ýta undir borgarastyrjöldina í Sýrlandi.

Til Íraksstríðsins var stofnað með upplognum tylliástæðum, eins og margoft hefur verið rakið síðan. Þrátt fyrir margvíslegar falsanir og blekkingar, tókst Bandaríkjamönnum og Bretum ekki að sannfæra Sameinuðu þjóðirnar um réttmæti innrásar. Þar sem ráðamenn í Washington og Lundúnum töldu sig þurfa að ljá aðgerðum sínum blæ alþjóðlegrar viðurkenningar, gripu þeir til óvenjulegs ráðs: safnað var á meðmælendalista „staðfastra þjóða”.

Forystumenn ríkisstjórnar Íslands á þeim tíma ákváðu að leggja þessari meðmælendasöfnun lið sitt og bættu Íslandi á listann. Ekki er ljóst hvort þeir hafi í raun gert sér skýra grein fyrir því hvað í skuldbindingunni fælist eða hvernig listinn yrði notaður. Markmiðið var þó öllu augljósara: formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerðu sér vonir um að liðveislan yrði launuð með lengri hersetu á Miðnesheiði. Líklegt má telja að stuðningurinn við Íraksstríðið hafi framlengt líf herstöðvarinnar um rúmlega ár.

Stuðningsyfirlýsingin fyrir áratug er einhver ömurlegasti bletturinn á utanríkismálasögu Íslendinga síðustu áratugina. Með því lögðum við okkar af mörkum til að greiða fyrir blóðugri styrjöld og grófum í leiðinni undan mikilvægum alþjóðastofnunum. Það er umhugsunarvert að enn í dag heimili stjórnskipan okkar að utanríkisráðherra geti upp á sitt einsdæmi gert Ísland að stuðningsaðila styrjalda í fjarlægum löndum.

Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga

(Greinin birtist einnig í Fréttablaðinu.)

Auctor consectetur ligula gravida

By Uncategorized No Comments

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Morbi vitae dui et nunc ornare vulputate non fringilla massa. Praesent sit amet erat sapien, auctor consectetur ligula. Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Sed non ligula augue. Praesent imperdiet magna at risus lobortis ac accumsan lorem ornare. In aliquam, sapien ac vehicula vestibulum, arcu magna aliquet velit,

Aðalfundur Friðarhúss SHA ehf.

By Uncategorized

Aðalfundur Friðarhúss SHA ehf, eignarhaldsfélags Friðarhússins á Njálsgötu 87, verður haldið sunnudaginn 17. mars kl. 14 í húsnæði samtakanna.

Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf.

Hluthafar sem ekki komast á fundinn eru hvattir til að veita e-m öðrum umboð fyrir hlut sínum, t.d. með því að senda tölvupóst þar um á sha@fridur.is

Courage is not the absence of fear, but rather the judgement that something else is more important than fear

Ambrose Redmoon