Blóðugt ár í Írak

By 03/01/2014 Uncategorized

Árið 2013 reyndist eitt það blóðugasta í Írak frá innrásinni í landið fyrir áratug síðan. Meira en tíu þúsund manns féllu í átöku stríðandi fylkinga, en landið logar í deilum milli þjóðarbrota og trúarhópa. Um 1.200 manns féllu í desembermánuði einum í því sem ýmsir óttast að sé einungis byrjunin á nýrri borgarastyrjöld sem muni leiða ómældar hörmungar yfir þessa stríðshrjáðu þjóð á árinu 2014.

Tómlæti vestrænna fjölmiðla og stjórnmálamanna um atburði þessa er sláandi. Flestum má þó vera ljós ábyrgð þeirra sem hófu þessa vegferð árið 2003. Innrásin í Írak er versta ákvörðun sem tekin hefur verið á síðustu áratugum og heimurinn mun súpa seyðið af henni um langt árabil. Verstar eru þó hörmungar Íraka sjálfra.

Sláandi er þó að sjá hversu erfitt valdaþjóðum heimsins ætlar að reynast að draga lærdóma af þessari sögu. Enn í dag er enginn hörgull á þeim sem telja að unnt sé að hefja skammvinn og einföld stríð með loftárásum, sem greiði úr flækjum í löndum þar sem íbúar eru af ótal þjóðum, ættbálkum og trúarhópum og að slíkar aðgerðir geri ekki bara illt verra.

Hér má lesa frétt AP, samantekt á tölu fallinna í Írak á liðnu ári: http://bigstory.ap.org/article/un-iraq-sees-highest-annual-death-toll-years