Barnagull

By 03/04/2007 Uncategorized

leikfongÞað er talsvert um að börn friðarsinna mæti á fundi og samkomur í Friðarhús ásamt foreldrum sínum. Til að koma til móts við þessa yngstu gesti, hefur verið komið upp litlu barnahorni með litum, leikföngum o.þ.h.

Það væri þó synd að segja að leikfangaúrvalið í krakkahorninu sé glæsilegt. Raunar er það óttalegur samtíningur og úr sér gengið.

Líklegt má telja að allmargir hernaðarandstæðingar lumi á notuðum leikföngum, barnabókum og öðru sem komið gæti að góðu gagni og gert stundirnar í Friðarhúsi ánægjulegar fyrir smáfólkið. Endilega hafið samband með því að senda tölvupóst á sha@fridur.is