Bandalag hinna staðföstu stríðsandstæðinga

By 13/03/2007 Uncategorized

   okkar h  ndumSenn eru liðin fjögur ár frá því að innrás Bandaríkjamanna og bandalagsríkja þeirra í Írak hófst, með formlegum stuðningi íslenskra stjórnvalda. Þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar ráðamanna í BNA um að friður sé að komast á í landinu, er ekkert lát á óöldinni í Írak og sífellt fleirum verður ljóst hvaða hörmungar stríðið hefur kallað yfir írösku þjóðina.

Mánudagskvöldið 19. mars munu hinir staðföstu stríðsandstæðingar efna til baráttusamkomu í Austurbæ, þar sem hernáminu verður mótmælt og þess krafist að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð vegna hins svívirðilega stuðnings við ólöglegt árásarstríð.

Dagskráin hefst kl. 20.

Ávörp flytja:
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Helgi Hjörvar

Tónlistaratriði:
XXX Rottweilerhundar,
Ólöf Arnalds

& Vilhelm Anton Jónsson

Upplestur:
Bragi Ólafsson

Kynnir:
Davíð Þór Jónsson

Hinir staðföstu stríðsandstæðingar eru:

Samtök hernaðarandstæðinga
MFÍK
Þjóðarhreyfingin – með lýðræði
Ung vinstri græn

& Ungir Jafnaðarmenn