Íran hefur verið í sviðsljósi alþjóðamálanna á undanförnum misserum. Stjórnmálaástandið innanlands er óstöðugt og reglulega kemur til mikilla mótmælaaðgerða sem mætt er af fullri hörku af hálfu stjórnvalda. Landið tengist með ýmsum hætti stríðinu í Írak og margir óttast að Bandaríkjamenn hyggi á stríð við Írani á næstu misserum. Er nema von þó spurt sé: Hvað er á seyði í Íran?
Halla Gunnarsdóttir blaðamaður hefur dvalið í Íran og kynnt sér stöðu mála. Hún mun ræða um nýjustu fréttir og setja í pólitískt og sögulegt samhengi á félagsfundi SHA í Friðarhúsi miðvikudagskvöldið 27. janúar kl. 20. Allir velkomnir.
Hinir mánaðarlegu fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hefjast að nýju n.k. föstudagskvöldið, 29. janúar. Boðið verður upp á indverskan þorramat (matseðill birtur síðar).
Eldamennskan verður í höndum matreiðsluhópsins Bollywood, sem skipaður er nokkrum félögum í miðnefnd SHA. Húsið verður að venju opnað kl. 18:30, en borðhald hest kl. 19. Verð kr. 1.500. Allir velkomnir.