Guttormur Þorsteinsson, Author at Friður.is
Þjóðaröryggisstefna Samtaka hernaðarandstæðinga
Á þessum þjóðhátíðardegi Íslendinga kynnum við þjóðaröryggisstefnu Samtaka hernaðarandstæðinga sem hefur verið í vinnslu frá áramótum. Hún er ætluð sem andsvar við þeirri háskalegu vígbúnaðarstefnu sem stjórnvöld hafa fylgt síðustu misseri.
Þjóðaröryggisstefna Samtaka hernaðarandstæðinga fyrir Ísland byggir á raunsæju mati á þeim raunverulegu ógnum sem steðja að íbúm og náttúru landsins, jafnt staðbundið sem í alþjóðlegu samhengi. Grunnur hennar er herlaust land sem fylgir öflugri friðar- og sáttastefnu og vinnur gegn hernaðarhyggju og hernaðarlausnum í samskiptum ríkja og þjóða. Hún byggir einnig á eindregnum stuðningi við mannréttindi og alþjóðalög. Rödd þjóðarinnar í þessum efnum verður að vera skýr og hljóma hátt. Slík stefna elur af sér virðingu og orðstír á alþjóðavísu sem er í sjálfu sér öflug vörn í vályndum heimi. Friðarhugsjóninni um herlaust landi fylgja bæði ábyrgð og skyldur og henni ber að fylgja eftir í orði og verki. Helstu áhersluatriði hennar eru þessi:
Ísland er í hópi þeirra ríkja í veröldinni sem aldrei hefur starfrækt eigin her. Á þetta ber að líta sem fordæmisgefandi friðarvilja og friðarfrumkvæði en ekki ákall um vernd erlendra hervelda. Kostir herleysisins eru meðal annars þeir að það gefur stjórnvöldum færi á að vera trúverðugur málsvari friðsamlegra lausna, auk þess sem mikið öryggi er í því fólgið að stórir hópar manna hafi ekki hlotið formlega þjálfun í því að skaka vopn og beita ofbeldi. Íslendingar skulu ekki senda fulltrúa til starfa á vegum erlendra herja og hindra eftir því sem unnt er að íslenskir ríkisborgarar gangi til liðs við heri annarra ríkja.
Ísland skal standa utan allra hernaðarbandalaga ekki taka þátt í samstarfi um hernað og vígbúnað. Sú niðurstaða er rökrétt, ekki einungis í ljósi þeirrar staðreyndar að Ísland er herlaust land, heldur einnig þar sem grunnforsenda allra hernaðarbandalaga er beiting ofbeldis og trú á vopnavaldi. Vopnaður friður hefur aldrei verið annað en stund milli stríða. Úrsögn Íslands úr Nató myndi auka öryggi landsmanna til mikilla muna og minnka líkurnar á að þjóðin verði dregin inn í hernaðarátök.
Kjarnorkusprengjur eru háskalegustu vopn sem mannkynið hefur skapað og hættan á beitingu þeirra er einhver stærsta tilvistarógn þess. Þessi ógn fer vaxandi. Friðlýsa ber Ísland og íslenska landhelgi fyrir kjarnorkuvopnum og kjarnorkuknúnum farartækjum. Ísland á að undirrita sáttmála Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum og berjast fyrir honum við öll tækifæri. Aðild að hernaðarbandalagi sem áskilur sér rétt til beitingar kjarnorkuvopna að er siðferðislega óverjandi.
Íslensk stjórnvöld veiti erlendum herveldum ekki afnot af íslensku landi, landhelgi eða lofthelgi til hernaðaruppbyggingar, herflutninga eða æfinga. Ólöglegt verði að stunda framleiðslu á hergögnum og íhlutum í þau.
Utanríkisstefna Íslands skal leitast við að gæta hlutleysis í átökum stórvelda. Ísland skal kappkosta að tala máli friðar- og afvopnunar á alþjóðavettvangi og skipa sér í sveit með öðrum ríkjum sem aðhyllast hlutleysisstefnu.
Utanríkisþjónusta Íslands skal hafa á að skipa sérfræðingum á svið friðarmála, afvopnunar og sáttamiðlunar. Brýnt er að efla friðarfræðslu á öllum skólastigum, jafnt í leikskólum sem á háskólastigi. Styrkja skal sjálfstæðar rannsóknarstofnanir á sviði friðarmála og borgaralegra varna. Íslensk stjórnvöld skulu leitast við að verja ámóta fjármagni til friðarmála og neyðaraðstoðar á stríðshrjáðum svæðum og það eyðir í vopnakaup og aðrar hernaðarskuldbindingar í dag.
Virk þátttaka í alþjóðastofnunum og alþjóðlegu samstarfi er lykilatriði fyrir öryggi landsmanna. Meðal mikilvægra stofnana mætti nefna Norðurlandaráð, Vestnorrænaráðið, Norðurskautsráðið auk Sameinuðu þjóðanna og undirstofnanna þeirra. Í stað þess að treysta á hervernd stórvelda ætti Ísland að efla samstarf við minni ríki um að framfylgja alþjóðalögum. Brýnt er að efla þróunaraðstoð og þróunarsamvinnu.
Helstu ógnir íslensks samfélags tengjast náttúruvá. Til að verjast slíkum ógnum eða fyrirbyggja þær er brýnt að byggja upp almannavarnir sem hafa aðgang að öflugum, þrautþjálfuðum og vel tæknivæddum viðbragðsaðilum, jafnt á vegum hins opinbera og björgunarsveita. Landhelgisgæslan er hér í mikilvægu hlutverki og þarf að tryggja henni búnað og aðstöðu eftir þörfum. Í alþjóðlegu samstarfi er mikilvægt að Landhelgisgæslunni og björgunarsveitum sé ekki þvælt inn í hernaðarleg verkefni. Standa skal vörð um borgaralegt hlutverk þeirra.
Mengun og útblástur af völdum hernaðarumsvifa ógnar lífskilyrðum á jörðinni. Herir eru stærsti einstaki mengunarvaldurinn og hér á Íslandi hefur bandaríski herinn þegar valdið óbætanlegu umhverfistjóni. Ísland skuli á alþjóðavettvangi berjast fyrir því að bundinn verði endir á þessa hernaðarmengun og að þeir sem valda henni taki fulla ábyrgð.
Mikilvægt er að tryggja stafrænt fullveldi og öryggi samskipta- og fjármálainnviða landsins hvort sem það er gegn netárásum eða njósnum og afskiptum erlendra auðhringa og stórvelda. Í því skyni er nauðsynlegt að opinberar stofnanir og samfélagslega mikilvægir innviðir eins og greiðslumiðlun séu ekki háðir erlendum stórfyrirtækjum um hugbúnað og gagnahýsingu.
Að tryggja fæðuöryggi er lykilþáttur fyrir afkomu þjóðarinnar. Einnig þarf að tryggja forgangangsröðun í opinberum útgjöldum til heilbrigðis- og velferðarmála. Reynslan sýnir að velferðarkerfið situr á hakanum þegar útgjöld aukast til hernaðar- og vígbúnaðarmála.
Samheldni og félagslegt öryggi er forsenda friðar innanlands. Besta leiðin til þess að tryggja hann er að draga úr misskiptingu og útrýma fátækt.
Greinargerð með þjóðaröryggisstefnu SHA
Við lifum á tímum pólitískrar, siðferðislegrar og náttúrufarslegrar hnignunar. Almennu lýðræði hefur hrakað, mannréttindi og mannréttindasáttmálar eiga í vök að verjast, alþjóðalög eru þverbrotin, öryggis- og afvopnunarsamningar eru látnir úr gildi falla, Sameinuðu þjóðirnar og stofnanir þeirra eru vanvirtar, það er grafið undan friðarstofnunum, þjóðarmorð eru framin,  banatilræði, rán og morð á leiðtogum þjóða og trúarhópa viðgangast refsilaust og náttúrugæðum fer hnignandi um heim allan. Svar ráðamanna í flestum nágrannaríkjum okkar við þessu er aukin vígbúnaður, aukinn fjáraustur í vopn og vígatól og kjarnorkuvopnavæðing. Á Íslandi endurspeglast þetta í auknum fjárveitingum til hernaðarmála og vopnakaupa fyrir erlenda heri til að beita á átakasvæðum. Aðstaða fyrir hernaðarumsvif á landi og við strendur landsins er rýmkuð. Opnað er á möguleika Íslands til að taka þátt í hergagnaframleiðslu.
Meginstoðir í gildandi þjóðaröryggisstefnu Íslands og stefnunnar í varnar- og öryggismálum eru Natóaðildin og herstöðvasamningurinn við Bandaríkin. Í gegnum tíðina hafa Nató-ríkin og forysturíki þess Bandaríkin tekið þátt í fjölmörgum árásarstríðum víða um heim og gera það enn. Þau hafa einnig sýnt algjöran vanmátt í því að finna friðsamlega lausn á þeim styrjöldum sem yfir standa og áveðið þess í stað að vinna að stórauknum vígbúnaði og stefna þar á meðal að aukinni dreifingu á kjarnorkuvopnum. Nató horfir til vígvæðingar í stað friðar.
Við lifum á tímum hnignunar og útlit heimsmálanna er dökkt. Hér þarf nýja og djarfa hugsun til að lifa af. Það þarf róttæka friðarhugsun og friðarstefnu gegn þeirri hernaðarhyggju og stríðsstefnu sem ríkir.  SHA setja því fram sína eigin Þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland sem á að endurspegla þetta og sem samtökin munu berjast fyrir. Hér er ekki verið að boða milda og hægverska friðarhyggju, þetta er ágeng og marksækin stefna, skrefið er stigið til fulls, kjörorðin eru: Höfnum hervæðingu – heimtum friðvæðingu. Ef eitthvað er hægt að læra af mannkynssögunni þá er það að vopn og vígbúnaður tryggja ekki frið. Hins vegar gæti afvopnun gert það. Stefnan tekur mið af þeim skuldbindingum sem felast í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna gagnvart lýðræði og virðingu fyrir alþjóðalögum, mannúð og verndun mannréttinda, almennu jafnrétti og sjálfbærri þróun.
Friðarstefnan sem hér er sett fram er á sama tíma öflug varnarstefna. Varnirnar eru fólgnar í því að friðarmálstaður og friðarmenning verði samofin ímynd lands og þjóðar um heim allan. Ísland á að standa herlaust og utan hernaðarbandalaga og mynda tengsl við lönd og þjóðir sem vilja feta sömu braut.  Íslensk stjórnvöld eiga með skeleggum og skýrum hætti talað fyrir friði og ástunda sáttamiðlum þjóða í milli hvenær sem þörf krefur og færi býðst. Þannig verður landið og þjóðin slík táknmynd friðarhyggjunnar að herveldi munu hika við að beita þau vopnuðum yfirgangi. Ísland er í kjörstöðu sem alþjóðlegur sáttasemjari og myndi njóta víðtæks trausts um leið og ljóst væri að öryggisstefnunni er hvorki fjarstýrt af amerískum né evrópskum hernaðarhaukum. Þessa stöðu verða stjórnvöld að skilja og nýta.
The post Þjóðaröryggisstefna Samtaka hernaðarandstæðinga appeared first on Friður.is.
Kvöldið fyrir þjóðhátíðardag, þriðjudaginn 16. júní kl. 20, munu Samtök hernaðarandstæðinga afgreiða nýja þjóðaröryggisstefnu sína í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Stefnan hefur verið til umræðu innan samtakanna á liðnum mánuðum og var ítarlega rædd á landsfundi í vor. Nú er komið að því að leggja lokahönd á plaggið.
Öll velkomin.
Samtök hernaðarandstæðinga sýna heimildamyndina Earth‘s Greatest Enemy í Friðarhúsi miðvikudaginn 20. maí kl. 19:45. Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.
Heimildarmyndin er eftir bandaríska róttæklinginn Abby Martin og sameinar rannsóknarblaðamennsku, áhrifamikið myndefni og sögur frá samfélögum sem hafa þurft að líða fyrir hernaðarumsvif bandaríkjahers. Myndin hvetur áhorfendur til að íhuga þann kostnað og þær afleiðingar sem þau hafa í för með sér fyrir jörðina okkar.
Í myndinni er varpað ljósi á hvernig herinn leggur aðeins hernaðarlegt mat á aðgerðir en tekur ekki tillit til áhrifa þeirra á umhverfi og samfélög. Árásir hersins á olíubirgðastöðvar geta til dæmis valdið gífurlegri mengun og varanlegu tjóni á umhverfi og náttúru. Bandaríska varnarmálaráðuneytið er stærsti mengunarvaldur heims – það losar umtalsvert kolefni, mengar vatn og eyðileggur vistkerfi um allan heim. Allt hernaðarbrölt er undanþegið alþjóðlegum loftslagssamningum en að auki hefur bandaríkjastjórn sagt sig frá þeim samningum.
Myndin er 120 mínútur að lengd og er framleidd af Empire Files í Bandaríkjunum. Abby og kollegar hennar stunda fréttamennsku í þágu almennings.
Hér má sjá sýnishorn úr myndinni.
Vormálsverður SHA: Pálínuboð miðnefndar
Hefðbundinn fjáröflunarmálsverður SHA í Friðarhúsi féll niður í apríl vegna almennra frídaga. Í staðinn blásum við til vormálsverðar föstudaginn 8. maí. Að þessu sinni verður boðið upp á hlaðborð rétta sem meðlimir í miðnefnd töfra fram – kjúklingasalat, lundir, grænmetisréttir og kökur.
Að borðhaldi loknu les Áslaug Agnarsdóttir úr verðlaunaþýðingu sinni á Ívan Túrgenev: Minnisblöð veiðimanns. Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon tekur lagið.
Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Verð kr. 3.000. Öll velkomin.
The post Vormálsverður SHA: Pálínuboð miðnefndar appeared first on Friður.is.
1. maí kaffi SHA
Hitið upp fyrir kröfugönguna með hinu hefðbundna og einkar veglega 1. maí kaffi Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi, Njálsgötu 87, frá kl. 11 til 13. Gangan leggur svo af stað frá Skólavörðuholti.
Í boði verða vöfflur eins og þið getið í ykkur látið og annað heimagert góðgæti. Undir lokin tökum við lagið og dreifum kröfuspjöldum. Aðgangseyrir einungis 1000 krónur.
The post 1. maí kaffi SHA appeared first on Friður.is.
Málsverði frestað til 8. maí.
Kæri hernaðarandstæðingur
Skarpir friðarsinnar hafa væntanlega áttað sig á því að smkv. venju ætti næsti reglubundni málfsverður í Friðarhúsi að vera næsta föstudag. Miðnefnd SHA hefur hins vegar ákveðið að fresta málsverðinum til 8. maí n.k.
Að venju verður morgunkaffi SHA í Friðarhúsi þann 1. maí. Það hefst kl. 11 og stendur fram að göngu verkalýðsfélaganna.
The post Málsverði frestað til 8. maí. appeared first on Friður.is.
Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir nýlega varnar- og öryggismálastefnu sem samþykkt var einróma á Alþingi fyrr á árinu. Stefna þessi, sem virðist að miklu leyti eiga að víkja til hliðar gildandi þjóðaröryggisstefnu, leggur höfuðáherslu á aðildina að Nató og hernaðarsamstarf við Bandaríkin á grunni herstöðvasamningsins frá 1951 sem grunnstoða íslenskrar utanríkisstefnu.
Það voru stórkostleg mistök að herstöðvasamningnum hafi ekki verið sagt upp þegar herstöð Bandaríkjamanna á Miðnesheiði var lokað á árinu 2006. Með samningnum og seinni viðaukum við hann, er Ísland flækt í net Bandaríkjanna sem hafa í raun fullt sjálfdæmi um umsvif sín og viðbúnað á Íslandi. Ásælni Bandaríkjanna í Grænland er alvarleg aðvörun um hvaða ógn stafar af hinum meinta bandamanni.
Jafnframt leiðir yfirstandandi árásarstríð Bandaríkjanna og Ísraels í Miðausturlöndum glögglega í ljós hvílík hætta er búin hverju því ríki sem treystir Bandaríkjunum og Bandaríkjaher fyrir öryggi sínu.
Herstöð er skotmark!
Ályktun um stríð í Mið-Austurlöndum
Á síðustu mánuðum hefur heimurinn horft upp á óvenju grímulaus brot stórvelda á alþjóðalögum. Bandaríkin og Ísrael hafa í sífellu farið með árásum og hótunum gagnvart öðrum ríkjum, án þess að hirða um að ljá þeim aðgerðum nokkurt lögmæti. Mannrán, loftárásir og hótanir um innrásarstríð hafa dunið á heiminum það sem af er ári. Ábyrgðarleysið er fullkomið, þar sem hvorki er hirt um hættuna á að íhlutanirnar snúist upp í allsherjarstríð eða afleiðingarnar fyrir efnahagskerfi heimsins.
Allt tal um Bandaríkin sem forysturíki lýðræðis sem standi vörð um frið og stöðugleika er nú fráleitt. Um langt skeið hafa Bandaríkin og önnur Nató-ríki grafið undan alþjóðalögum og mikilvægustu alþjóðastofnunum á borð við Sameinuðu þjóðirnar og stutt þjóðarmorð og yfirgang Ísraelsríkis. Nú erum við að súpa seyðið af því. Stríðið í Íran er aðeins eitt dæmi af mörgum um þetta, þar sem teflt er á tæpara vað en heimsbyggðin hefur séð á þessari öld. Linkuleg viðbrögð Evrópuríkja, þar með talið íslenskra stjórnvalda, eru stórkostlega ámælisverð. Betur færi á því að fylgja fordæmi Spánverja, sem einir þjóða í álfunni hafa mótmælt stríðinu af krafti og neitað að leggja því nokkurt lið.
The post Ályktun um stríð í Mið-Austurlöndum appeared first on Friður.is.
Ný miðnefnd og velheppnaður landsfundur
Landsfundur SHA var haldinn laugardaginn 28. mars. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf og hádegishlé hélt Þórir Jónsson Hraundal lektor í Mið-Austurlandafræðum fróðlegt erindi um Íran og samhengi stríðsins sem geisar nú í Mið-Austurlöndum.
Að loknu erindi voru samþykktar tvær ályktanir og rætt um þjóðaröryggistefnu friðarsinna sem miðnefnd var falið að vinna áfram og samþykkja í heild sinni fyrir sumarbyrjun ásamt ályktun um samstarf við herlausar þjóðir.
Guttormur Þorsteinsson var endurkjörinn formaður og auk hans skipa nú miðnefnd:
Anna Ragna Fossberg Jóhönnudóttir
Askur Hrafn Hannesson
Elín Oddný Sigurðardóttir
Friðrik Atlason
Ingibjörg Haraldsdóttir
Lowana Veal
Ragnhildur Björt Björnsdóttir
Sigurður Flosason
Soffía Sigurðardóttir
Stefán Pálsson
Þorvaldur Þorvaldsson
The post Ný miðnefnd og velheppnaður landsfundur appeared first on Friður.is.
Marsmálsverður í Friðarhúsi – Setning landsfundar
Fjáröflunarmálsverður SHA í Friðarhúsi fer að venju fram síðasta föstudagskvöl mánaðarins en er að þessu sinni jafnframt setningarsamkoma landsfundar SHA sem fram fer daginn eftir.
Friðrik og Gísli Atlasynir eru kokkarnir að þessu sinni og galdra fram íranskar kræsingar:
Khoresh-e Azadi, persneskur frelsispottur, kjötréttur
Khoresh Azadi, bragð mótstöðunnar, veganréttur
Hrísgrjón, salat og annað meðlæti
Kaffi og konfekt
Að borðhaldi tekur við menningardagskrá. Tónlistartvíeykið The Veiled Mother tekur lagið. Ljóðskáldið Arndís Þórarinsdóttir les úr nýútkominni ljóðabók.
Borðhald hefst.kl. 19. Verð kr. 3000.
Öll velkomin.
The post Marsmálsverður í Friðarhúsi – Setning landsfundar appeared first on Friður.is.