Árásirnar á Líbanon, undirskriftasafnanir, mótmælaaðgerðir víða um heim, ein prédikun og myndir

By 25/07/2006 Uncategorized

Hörmulegt hefur verið að fylgjast með árásum Ísraelshers á grannríkið Líbanon undanfarna daga. Hernaður þessi nýtur samþykkis og stuðnings ráðamanna í Bandaríkjunum, sem sömuleiðis standa í vegi fyrir fordæmingu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á hernaðinum. Það hlýtur að vera krafa friðarsinna hér á landi að íslensk stjórnvöld tali með ákveðnum hætti gegn stríðinu, fordæmi aðgerðir Ísraelsmanna sem og allt ofbeldi gegn almennum borgurum. Þá verður ríkisstjórn Íslands að krefjast þess að vopnasölu til Bandaríkjamanna og fleiri aðila til stríðssvæðanna verði tafarlaust hætt.

Beirut

Undirskriftasöfnun gegn árásum Ísraels á Líbanon

Sett hefur verið í gang í Líbanon undirskriftasöfnun undir nafninu „Save the Lebanese Civilians Petition“ og er hún kynnt á vefsíðunni Save Lebanon. Hægt er að skrifa undir rafrænt á vefsíðunni: http://epetitions.net/julywar/index.php. Þegar þetta er skrifað hafa safnast 187892 undirskriftir og bætast nokkar við á hverri mínútu. Textinn til undirritunar er svohljóðandi í lauslegri íslenskri þýðingu:

    Til allra þeirra sem vilja láta sig málið varða:

    „Að drepa saklausa borgara er EKKI sjálfsvörn. Að eyðileggja sjálfstæða þjóð eru EKKI yfirveguð viðbrögð.“

    Almenningur í Líbanon hefur mátt sæta stöðugum árásum frá Ísraelsríki undanfarna daga. Ísraelsríki hefur lagt hafn- og flugbann á Líbanon sem beinist gegn allri líbönsku þjóðinni. Það er brot á alþjóðalögum og Gefnarsáttmálunum. Saklaus almenningur í Líbanon er látinn sæta sameiginlegri refsingu af hálfu Ísraelsríkis með meðvituðum hryðjuverkum eins og lýst er í 33. grein fjórða Genfarsáttmálans.

    Líbanska þjóðin finnur sig yfirgefna af heiminum sem hefur lokað augunum gagnvart villimennsku Ísraelsríkis. Ísrael virðist ekki geta nálgast neitt vandamál án þess að grípa til þess vopnavalds sem það hefur yfir að ráða með stuðningi ríkisstjórna Bandaríkjanna og annarra vestrænna ríkja.

    Við skrifum þér þetta bréf í þeirri von að þessi fjöldamorð verði stöðvuð þegar í stað. Það er frumskylda hvers einasta manns að verja hina saklausu og leiða sannleikann í ljós. Á hverjum klukkutíma fjölgar hinum fjölmörgu fórnarlömbum aðgerða Ísraels. Siðleysi þessara árása hefur náð skelfilegu stigi þegar barn er hlutað í þrennt meðan annað er brennt til hálfs.

    Í blindu miskunnarleysi er hernaðarvél Ísraels ekki aðeins að leggja líf okkar í rúst heldur einnig þær undirstöður samfélagsins sem gefur almenningi von um að komast lífs gegnum fjöldamorðin. Ísraelski herinn er að eyðileggja á nokkrum klukkustundum það sem Líbanon hefur eytt mörgum árum og milljörðum dollara að byggja upp.

    Nú hafa meira en 300 almennir borgarar verið drepnir í Líbanon og þúsunda er saknað undir rústum, þúsundir eru særðir, brýr og mikilvæg mannvirki og tæki eru eyðilögð, flóttamenn yfirgefa Beirút í flokkum og búast má við að áframhaldandi umsátur muni á næstu dögum valda einn frekari hamförum. Það verður að binda endi á þetta ofbeldi og stöðug brot á alþjóðalögum og grundvallar siðferðisreglum.

    Hinir umsetnu íbúar Líbanons eiga sér engra undankomu auðið milli hins blinda alþjóðasamfélags og daufdumba Arabasamfélags.

    Friður hefst með réttlæti

Þessi yfirlýsing verður send öllum fulltrúum í þingum Bandaríkjanna, Kanada, Frakklands, Þýskalands, Bretlands og Evrópusambandsins og hugsanlega fleiri landa. Einnig verður hún send 500 fjölmiðlum um allan heim.

Undirskriftasöfnun Amnesty International

Amnesty International hefur hafið söfnun undirskrifta undir bréf til Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, Sjeik Hassan Nasrallah, aðalritara Hisbollah og Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons. Hægt er að nálgast texta bréfanna á alþjóðlegri vefsíðu Amnesty ásamt heimilisföngum og netföngum.

Mótmælafundir gegn árásum Ísraels á Líbanon

Strax eftir að Ísrael réðist inn í Líbanon hófust mótmælaaðgerðir víðsvegar um heim. Í Bandaríkjunum voru víða mótmælafundir um miðja síðustu viku og um helgina voru mótmælafundir í fjölmörgum borgum og bæjum um allan heim. Í Tel Aviv komu um 5 þúsund Gyðingar og Arabar saman til að mótmæla stríðsglæpum Ísraels. Fundir voru einnig í Líbanon, Palestínu, Jórdaníu, Íran, Egyptalandi og Súdan. Í Evrópu voru mótmælaaðgerðir víða. Á vefsíðu Stop the War Coalition í Bretlandi kemur fram að um 30 þúsund manns komu saman í Lundúnum en einnig voru fundir í Manchester, Glasgow, Edinborg, Newcastle og Sheffield. Þá voru mótmælafundir í Genf, Bern, París, Brussel, Amsterdam, víða í Þýskalandi, Lissabon, Barselóna, Madrid, Róm, Aþenu, Kýpur, Prag, Varsjá, Osló, Kaupmannahöfn, Helsinki, Stokkhólmi. Einnig voru mótmælafundir í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og Rómönsku Ameríku. Í Asíu voru mótmælafundir víða, svo sem í Sri Lanka, Kasmír, ýmsum borgum á Indlandi og Pakistan, Dhaka í Bangladesh, Manila, Djakarta, Seoul. Og er þá eflaust ekki nærri allt talið. Nánari upplýsingar er að finna á Indymedia og www.nadir.org og myndir á vefsíðu National Council of Arab Americans (NCA) og www.nadir.org.

Auk þessara funda eru víða daglegar mótmælastöður og víða eru fyrirhugaðir mótmælafundir á næstu dögum. Upplýsingar um það má nálgast á vefsíðunum Lebanon Expats og Save Lebanon. Í Bandaríkjunum hafa samtökin International A.N.S.W.E.R boðað víðtækar mótmælaaðgerðir 12. ágúst. Sjá einnig grein um vaxandi andstöðu gegn Ísrael í Evrópu á vefsíðunni Electronic Intifada.

Sjá einnig Indymedia í Beirút.

Prédikun séra Arnar Bárðar Jónssonar í Neskirkju

Vert er að benda á prédikun sem séra Örn Bárður Jónsson hélt í Neskirkju síðastliðinn sunnudag. Prédikunina er hægt að nálgast á heimasíðu séra Arnar Bárðar.

Hryllilegar myndir af afleiðingum stríðsins

Myndir sem sýna brot af þeim hryllingi og glæpaverkum sem nú eru framin í Líbanon má finna á ýmsum vefsíðum. Við birtum hér slóðir að nokkrum þessara síðna en vörum við myndunum, þær eru ekki fyrir börn eða viðkvæmt fólk:

Arab-americans.blogspot.com: Images of Children Killed in Lebanon

Arab-americans.blogspot.com: The Zionist Education System

Save Lebanon

From Israel to Lebanon

Cmylebanon.com