Aðalfundir á döfinni

By 01/03/2016 Uncategorized

Aðalfundaglaðir friðarsinnar geta glaðst því tveir slíkir fundir eru framundan.

Sunnudaginn 6. mars kl. 14 verður aðalfundur Friðarhúss SHA ehf. haldinn í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Hluthafar eru hvattir til að mæta. Komist fólk ekki á svæðið er mikiðvægt að koma umboði til annars fundargests. Það má gera í gegnum tölvupóst með því að senda á Elvar Ástráðsson stjórnarformann: systaelv@itn.is

Tæpri viku síðar, laugardaginn 12. mars, verður landsfundur SHA á sama stað. Hann hefst kl. 11 með hefðbundnum aðalfundarstörfum.