Aðalfundur Friðarhúss SHA ehf.

By 08/04/2007 Uncategorized

kapitalistAðalfundur Friðarhúss SHA ehf. verður haldinn laugardaginn 21. apríl n.k. kl. 14 í Friðarhúsi. Á dagskránni verða hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins:

* Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
* Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til samþykktar.
* Rekstraráætlun lögð fram til umræðu og samþykktar.
* Stjórn félagsins kjörin ásamt endurskoðendum eða skoðunarmönnum.

Vegna laga um einkahlutafélög er afar mikilvægt að sem flestir mæti á fundinn. Þeir sem ekki eiga heimangengt eru hvattir til að veita umboð fyrir atkvæðum sínum. Það má t.d. gera með því að senda tölvupóst á netfangið sha@fridur.is

Sömuleiðis er rétt að vekja athygli á því að enn er hægt að bætast við hluthafahópinn fyrir aðalfund. Sjá nánar.