Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga gagnrýnirharðlega aukna ásælni Bandaríkjastjórnar í umsvif oghernaðaraðstöðu á Íslandi. Hún hefur birst í fréttum afyfirvofandi og áformuðum byggingarframkvæmdumBandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli fyrir milljarðakróna, 300 milljóna króna framlagi Íslands til viðhaldshernaðarmannvirkja, vinnu við skipulag varnarsvæðisinsá Miðnesheiði og ítrekuðum ummælum utanríkisráðherraog annarra ráðamanna um mikilvægi þessarar viðveru.
Umsvif Bandaríkjahers á Íslandi byggjast á varnarsamningi ríkjanna og seinni tíma viðaukum ogbókunum við hann. Illu heilli var varnarsamningnumekki sagt upp um leið og tilkynnt var um lokunherstöðvarinnar á Miðnesheiði árið 2006, en með honummá segja að Bandaríkjamönnum sé veitt sjálfdæmivarðandi umfang starfsemi sinnar á landinu. Hernaðarstarfsemi þessi er jafnframt studd af aðildÍslands að Nató og talin hluti af skyldum Íslendinga semaðildarþjóðar bandalagsins.
Samtök hernaðarandstæðinga árétta þá stefnu sína aðvarnarsamningnum verði sagt upp tafarlaust og að Íslandgangi úr hernaðarbandalaginu Nató. Jafnframt eigastjórnvöld að banna hvers kyns hernaðarumsvif á íslensku yfirráðasvæði, þar á meðal alltkafbátaeftirlitsflug og flugæfingar þær sem kallaðar eruloftrýmisgæsla. Þá ber Alþingi að endurskoðaþjóðaröryggisstefnu sína og hverfa frá þeirri áherslu á hermennsku og vígbúnað sem þar er að finna. Þess í staðættu Íslendingar að gerast talsmenn mannréttinda, friðarog mannúðar á alþjóðavettvangi.