Fyrsti fjáröflunarmálsverður ársins 2016 verður í Friðarhúsi föstudagskvöldið 29. janúar n.k. Kokkarnir kvöldsins verða sómaparið Benóný Harðarson og Iðunn Garðarsdóttir. Matseðillinn verður með flóknara móti: grænmetisréttur, fiskréttur og kjötréttur.
- Grænmetis-lasagne
- Bleikja í teriyaki og sesam
- Nauta ossobucco kássa
- Hrísgrjón og grænt salat.
Að borðhaldi loknu munu Ragnheiður Helga Bergmann Hafsteinsdóttir og Sveinbjörn Hafsteinsson flytja tónlistaratriði.
Húsið opnar að venju kl. 18:30 en borðhald hefst á slaginu 19:00. Verð kr. 2.000. Öll velkomin.