Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var fyrst haldinn hátíðlegur meðal sósíalískra kvenna í Danmörku, Þýskalandi, Austurríki og Sviss þann 19. mars árið 1911. Hugmyndina að sérstökum baráttudegi kvenna átti Clara Zetkin, þýsk kvenréttindakona og sósíalisti, sem bar hana fyrst upp á fundi Alþjóðasamtaka sósíalískra kvenna sem haldinn var í Kaupmannahöfn árið 1910.
Fundurinn mun hafa verið haldin í því húsi sem seinast var kallað Ungdomshuset og var frægt nú á dögunum og svo rifið til grunna.
Nánari upplýsingar um sögu dagsins má finna á vef Kvennasögusafnsins.