Það verður mikið um að vera í Reykjavík 18. mars þegar þess verður minnst um allan heim að þrjú ár eru liðin frá innrásinni í Írak. Klukkan eitt eftir hádegi verður fundur í Háskólabíói sem Þjóðarhreyfingingin – með lýðræði stendur fyrir. Að honum loknum verður efnt til mótmælafundar á Ingólfstorgi og hefst hann klukkan þrjú, en Samtök herstöðvaandstæðinga hafa frumkvæði að honum. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Takið daginn frá. Fjölmennum í Háskólabíó kl. 13 og á Ingólfstorg kl 15.
Upplýsingar um aðgerðir víða um heim má fá á vefsíðum Stop the War Coalition í Bretlandi og Troops Out Now í Bandaríkjunum.