Þunnur þrettándi frá sýslumanni

By 04/12/2006 Uncategorized

legalImageEins og kynnt hefur verið hér á Friðarvefnum fóru SHA fram á lögbann við för forsætis- og utanríkisráðherra á fund Atlantshafsbandalagsins undir lok síðasta mánaðar og/eða að komið væri í veg fyrir að ráðherrarnir hlutist að nokkru leyti til um hernaðaraðgerðir á fundinum sjálfum eða fyrir annan atbeina á vettvangi bandalagsins meðan á fundinum stæði.

Skemmst er frá því að segja að beiðninni var hafnað. Formanni SHA var tilkynnt um niðurstöðuna símleiðis en skriflegur rökstuðningur barst bréflega skömmu síðar. Niðurstaða sýslumannsembættisins olli vonbrigðum og það sama má segja um rökstuðning fullnustudeildar embættisins sem er í skötulíki.

Á tæpri blaðsíðu endursegir deildarstjóri beiðni SHA í stuttu máli og nokkur þeirra lagaákvæða sem erindinu lágu til grundvallar. Rökstuðningurinn er hins vegar afgreiddur í einni málsgrein:

Gerðarbeiðandi byggir á því í máli þessu að sú fyrirætlun gerðarþola að sækja fund Atlantshafsbandalagsins í Riga í Lettlandi, 28.-29. nóvember nk. brjóti gegn lögvörðum rétti hans. Eins og að framan getur verður lögbannsúrræðinu ekki beitt nema gerðarbeiðanda takist að sanna eða gera sennilegt að athöfn sú sem krafist er lögbanns við sé ólögmæt og að ljóst sé að hún brjóti gegn lögvörðum hagsmunumhans. Fyrirætlan um að sækja titekin fund verður ein og sér ekki talin ólögmæt athöfn. Telur sýslumaður að gerðarbeiðanda hefi ekki tekist að sýna fram á eða gera sennilegt að svo sé auk þess sem hann verður ekki talinn hafa sýnt fram á lögvarða hagsmuni sína af því að koma í veg fyrir að gerðarþolar sæki umræddan fund.

Óhætt er að segja að úrskurður þessi sé hroðvirknislegur, enda er engin tilraun gerð til að svara ítarlegum rökstuðningi SHA þess efnis að erlend fordæmi séu fyrir því að frjáls félagasamtök á sviði mannréttinda-, umhverfis- eða friðarmála geti átti rýmri aðkomu en ella að dómsmálum til að standa vörð um baráttumál sín.

Þá virðist sýslumaður leiða hjá sér seinni hluta kröfu SHA, þar sem varakrafa samtakanna var reifuð þess efnis að í það minnsta væri komið í veg fyrir að ráðherrarnir hlutist að nokkru leyti til um hernaðaraðgerðir á fundinum sjálfum eða fyrir annan atbeina á vettvangi bandalagsins meðan á fundinum stæði. Svar embættisins tekur augljóslega ekki á þessum seinni hluta lögbannsbeiðninnar og eru það ámælisverð vinnubrögð.

Miðnefnd SHA mun á næstu dögum koma saman til fundar og ákveða næstu skref í málinu.

Stefán Pálsson