Samstarfsnefnd friðarhreyfinga fundar kl. 20 í Friðarhúsi um undirbúning friðargöngu á Þorláksmessu. Deila á Facebook
Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi
Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hafa slegið í gegn og að þessu sinni verður efnt til veislu á fullveldisdaginn, föstudaginn 1. desember. Boðið er upp á jólahlaðborð með glæsilegum matseðli: Matseðill: Heimalöguð sænsk jólaskinka með karöflusalti, gulrótar-appelsínusalati og sinnepssósu Heimagerð lifrakæfa (verður borin fram heit) og heimagert rúgbrauð að hætti Systu Karrýsíld Bananasíld Listakonan Alexandra Kjuregej mun koma [...]
Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA
Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA verður haldinn n.k. fimmtudag í Barnaskólanum á Brekkunni („Rósenborg“) kl. 20. Í fundarboði kemur fram að rætt verði vítt og breytt um stöðu SHA í ljósi nýrra aðstæðna í hermálinu og þróun alþjóðamála. Ný stjórn verður skipuð og næstu skref ákveðin. Deila á Facebook
Styðjum baráttu fatlaðra í Palestínu. Gegn hernámi – fyrir réttindum og reisn
Í kvöld, miðvikudag, verður haldinn á Hótel Borg fundur í tilefni af alþjóðlegum samstöðudegi með Palestínu. Um leið og við hvetjum lesendur til að mæta á þennan fund birtum við eftirfarandi grein eftir Svein Rúnar Hauksson, formann Félagsins Ísland-Palestína. Ár hvert, þann 29. nóvember, er hvatt til samstöðu með baráttu palestínsku þjóðarinnar fyrir sjálfsákvörðunarrétti, að [...]
Segjum upp herstöðvasamningnum
Ályktun frá landsfundi SHA, 26. nóvember 2006 um uppsögn herstöðvasamningsins: Engum sem fylgst hefur með fréttum af hinum nýja „varnarsamningi“ sem koma á í stað hins alræmda samnings frá 1951 getur dulist að hér er ekki verið að semja um sambærilega aðstöðu Bandaríkjanna á Íslandi eða hernaðarsamstarf á sama grunni. Þeim mun meiri ástæða var [...]
Lærum af sögunni
Ályktun frá landsfundi SHA, 26. nóvember 2006 um hernaðarsamstarf við Norðmenn: Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla öllum áformum ríkisstjórnarinnar um að hefja svo kallaðar „varnarviðræður“ við Noreg. Grundvöllur slíkra viðræðna er sú ranghugmynd að einhver sérstök ógn steðji að öryggi Íslands um þessar mundir sem geri það að verkum að bregðast þurfi við í fljótræði. Þegar litið [...]
Uppgjöri fagnað
Ályktun frá landsfundi SHA, 26. nóvember 2006: Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fagnar því uppgjöri sem forysta Framsóknarflokksins hefur gert við hina hörmulegu stuðningsyfirlýsingu íslenskra stjórnvalda við ólöglegan hernað og hernám Íraks undir forystu Bandaríkjanna. Landsfundurinn skorar á Sjálfstæðisflokkinn að gera nú einnig hreint fyrir sínum dyrum og viðurkenna að rangar ákvarðanir voru teknar á röngum forsendum [...]
Nýtt nafn – sömu góðu samtökin
Landsfundur SHA var haldinn í Friðarhúsi í dag, sunnudag. Ný miðnefnd var kjörin á fundinum og fjöldi ályktanna samþykktur. Niðurstöður fundarins verða kynntar rækilega á þessum vettvangi á næstunni. Meðal markverðustu tíðinda má nefna að samþykkt var samhljóða að breyta nafni félagsins. Hið nýja heiti er Samtök hernaðarandstæðinga. Góður rómur var gerður að nýja nafninu, [...]
Friðarhús í útláni
Friðarhús er í útlani frá 14-20 Deila á Facebook
- SHA og MFÍK funda um þjóðernisöfgastefnur 5. október 2011
- Fjárlagafrumvarpið: 1,6 milljarður í hernaðarmál 18. desember 2008
- Ný miðnefnd SHA 16. nóvember 2008
- Ný miðnefnd SHA 6. nóvember 2005
- Fundað um fjármál 29. október 2005
- Fjáröflunarmálsverður maímánaðar 21. maí 2012
- Afmælisdagskráin 16. maí 13. maí 2012
- 40 ár fyrir friði 10. maí 2012
- Félagsfundur MFÍK: fréttir af Brasilíuförum 8. maí 2012
- 1. maí kaffi SHA 29. apríl 2012