Archive | maí, 2006

Fundað í friðarhúsi

Miðnefnd SHA og stjórn Friðarhúss funda sameiginlega til að ræða starfsemina næsta haust og rekstur húsnæðisins. Fundurinn er öllum opinn.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

G8 2007, kynningarfundur

Kynningarfundur og samkoma í tengslum við fyrirhugaðar aðgerðir gegn G8 fundi í Þýskalandi á næsta ári í Friðarhúsi. Allir velkomnir.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Félagsfundur MFÍK

MFÍK heldur félagsfund í Friðarhúsi.   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

G-8 og hreyfing hreyfinganna

Kynningarfundur, 30. maí kl. 20:00 Friðarhús er vettvangur funda ýmissa frjálsra félagasamtaka sem eiga það sameiginlegt að berjast fyrir betri og friðsamlegri framtíð. Þriðjudagskvöldið 30. maí verður haldinn áhugaverður fundur í Friðarhúsi þar sem rætt verður um baráttuna gegn G8-hópnum. Í kynningu fundarbjóðenda segir: Árlega hittast leiðtogar átta ríkustu, iðnvæddustu og valdamestu ríkja heims, G-8 [...]

Read full story Comments are closed

Málsverður á föstudag

Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss eru sívinsælir. Föstudagskvöldið 26. maí (kvöldið fyrir kjördag) verður blásið til veislu. Guðrún Bóasdóttir (Systa) stýrir eldamenskunni, en matseðillinn er á þessa leið: Lasagne Spánskar kartöflueggjakökur (Tortilla de Patatas) Linsubaunasalat Vatnsmelónusalat með fetaosti Brauð Borðhald hefst kl. 19, en húsið er opnað hálftíma fyrr. Að venju kostar maturinn einungis 1.000 krónur.   Deila [...]

Read full story Comments are closed

Símar herstöðvandstæðinga hleraðir: Hversu lengi var hlerað?

Upplýsingar Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings um símahleranir á tímum kalda stríðsins hafa vakið verðskuldaða athygli. Þessi tilvik sem um ræðir tengjast öll herstöðvaandstæðingum á einhvern hátt. Samkvæmt heimildum Guðna fengu íslensk stjórnvöld heimildir með dómsúrkurði til símahlerana vegna sex tilvika á árunum 1949 til 1968, átta heimildir alls. Þessi tilvik voru innganga Íslands í Atlantshafsbandalagið [...]

Read full story Comments are closed

Bandaríkin og NATO brjóta gegn NPT-sáttmálanum

Í febrúar 2005 kom út á vegum Natural Resources Defense Council (NRDC) ritið U.S. Nuclear Weapons in Europe. A review of post-Cold War policy, force levels, and war planning. Á vefnum nukestrat.com tekur höfundur ritsins, Hans M. Kristensen, saman helstu niðurstöður þess: Bandaríkin hafa nú 480 kjarnorkusprengjur í átta herstöðvum í sex Evrópulöndum: Belgíu, Þýskalandi, [...]

Read full story Comments are closed

Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi

Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi. Húsið verður opnað kl. 18:30 en borðhald hefst kl. 19. Matur fyrir litlar 1.000 krónur. Systa eldar Sjá myndir frá 24. mars. Matseðill Lasagne Spánskar kartöflueggjakökur (Tortilla de Patatas) Linsubaunasalat Vatnsmelónusalat með fetaosti Brauð   Deila á Facebook

Read full story Comments are closed

Yfirlýsing frá fundi alþýðuhreyfinganna á fjórða Evrópska samfélagsþinginu í Aþenu 7. maí 2006

Fjórða Evrópska samfélagsþinginu (European Social Forum) lauk í Aþenu 7. maí. Í lok Evrópsku samfélagsþinganna hefur venjulega verið haldinn almennur fundur sem hefur verið kallaður „fundur alþýðuhreyfinganna“ eða á ensku Assembly of the Social Movements. Aðalverkefni þessara funda er að ræða sameiginlega baráttu næstu misserin og koma sé saman um stutta yfirlýsingu. Samskonar fundir hafa [...]

Read full story Comments are closed

Heitt friðarhaust 2006

Mikill hugur er nú í evrópskum friðarsinnum og öðrum baráttumönnum fyrir öðruvísi og betri veröld og eru ýmis fundarhöld og aðgerðir í bígerð. Aðgerðir gegn bandarískum herstöðvum í Evrópu 1. október Snemma í vor kom upp sú hugmynd að hafa sameiginlegar aðgerðir um alla Evrópu 1. október gegn bandarískum herstöðvum í álfunni. Þessi hugmynd hefur [...]

Read full story Comments are closed