Opinn félagsfundur MFÍK verður föstudaginn 17. maí kl. 19 í Friðarhúsi
Þórarinn Hjartarson flytur erindið: VESTRÆN HERNAÐARSTEFNA OG VIÐ
Fjallað verður um tafl heimsveldanna nú um stundir, ekki síst í Sýrlandi og Miðausturlöndum, um stuðning Íslands við nefnda hernaðarstefnu og um viðbrögð og viðbragðaskort íslenskra friðarsinna við henni.
Léttur kvöldverður seldur á kr. 1.500 í upphafi fundar. Húsið opnar kl. 18.30. Takið endilega með ykkur gesti. Allir velkomnir.
Stjórn MFÍK