Samtök hernaðarandstæðinga mótmæla yfirstandandi heræfingum hér á landi og þeirri stefnu íslenskra ráðamanna að gera landið að æfingasvæði fyrir herlið NATO-þjóða.
Safnast verður saman við norska sendiráðið (við Fjólugötu), þriðjudaginn 14. ágúst kl. 17. Þaðan verður gengið að sendiráðum Bandaríkjanna, Danmerkur og loks numið staðar við Stjórnarráðið og húsráðendum á hverjum stað tjáð andstaða íslenskra friðarsinna. Hernaðarandstæðingar eru hvattir til að mæta.
(Myndin hér að ofan er frá mótmælum japanskra hernaðarandstæðinga gegn heræfingum þar í landi.)