30. mars er mikilvæg dagsetning í baráttusögu íslenskra friðarsinna, en á þeim degi samþykkti Alþingi inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið. Að venju minnast SHA 30. mars og halda á lofti kröfu sinni um að Ísland standi utan allra hernaðarbandalaga.
Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður að þessu sinni haldinn að kvöldi föstudagsins 30. mars. Guðrún Bóasdóttir (Systa) eldar Miðjarðarhafsmat:
* Coq au Vin (kjúklingur í rauðvíni)
* Svepparisotto fyrir grænmetisætur
* Heimabakað brauð
Verð kr. 1.500. Borðhald hefst kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr.
Boðið verðuyr upp á fjölbreytta ljóða- og menningardagskrá að mat loknum.
Ljóðskáldið Ingibjörg Haraldsdóttir les úr verkum sínum, auk þess sem fulltrúar úr menningarhópnum Nýhil koma fram. Þau eru: Gísli Hvanndal Ólafsson, Björk Þorgrímsdóttir, Ingólfur Gíslason og Halldór Halldórsson. Þá mun Birna Þórðardóttir lesa ljóð.