Vinstri græn á Suðurnesjum standa fyrir herkveðjuhátíð á Ránni í Keflavík nk. laugardag kl. 13-17.
Þetta verður hátíð með léttu yfirbragði en alvarlegum undirtóni. Fjölmörg atriði af ýmsu tagi. Bæði litið um öxl og horft fram á veginn. Þúsund blóm blómstra!
- Sambúð hers og þjóðar í hálfa öld – hvers er að minnast?
- Fögnuður eða söknuður þegar herinn fer?
- Segjum upp herstöðvasamningnum og NATO-samningunum?
- Reynum við að finna annan her í staðinn?
- Hvernig varnir þurfum við – og gegn hverjum?
- Árið 1918 hétum við ævarandi hlutleysi. Á að endurreisa hlutleysið?
- Starfslokasamningar? Hvernig gegnur fólki að fá nýtt starf?
- Hvernig verður viðskilnaðurinn – hreint land og fagurt land?
- Getum við rekið flugvöllinn – og janvel nýtt hann betur?
- Hvað tekur við? Ný tækifæri?
Ávörp m.a.
- Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, ávarpar samkomuna.
- Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ: Herinn fer, fögnum nýjum tækifærum
- Kristján Pálsson, sagnfræðinemi: Áhrifin voru líka jákvæð
- Árni Björnsson, þjóðháttafræðingur: Orðið varnarlið
- Sveinn Rúnar Hauksson. Sögur úr hersetunni
- Einar Ólafsson, ritstjóri Friðarvefsins: Um alþjóðlega baráttu gegn herstöðvum.
List og menning m.a.
- Rúnar Júlíusson, sá eini og sanni, segir frá kynnum sínum af hernum í máli og tónum.
- Sóleyjarkvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og tónlist Péturs Pálssonar var frumflutt 1965. Þrír upphaflegu flytjendanna syngja brot úr verkinu.
- Hljómsveitir skipaðar ungu fólki af Suðurnesjum og úr Reykjavík: Tokyo Megaplex, Æla, Hellvar, Kapteinn Hafsteinn og Kira Kira.
Kynnir er hinn bráðsnjalli Stefán Pálsson, sagnfræðingur með meiru.
Til sölu:
Veitingar á vegum hússins. Happdrættismiðar, hljómplötur, efni þeirra sem koma fram.
Vinstrihreyfingin grænt framboð á Suðurnesjum
Nánari upplýsingar:
Þorvaldur Örn Árnason, valdurorn@ismennt.is s. 424 6841
Marta Guðrún Jóhannesdóttir, martag@fss.is s. 867 5986