Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 26. febrúar n.k.
Um matseldina sér að þessu sinni Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi. Matseðillinn verður á þessa leið:
* Argentísk kjötsúpu í ásamt lífrænu og hollu brauði
* Byggkássa úr lífrænu byggi með engiferssojasósu og himneskt súrsætt salat úr lífrænu grænmeti
* Kaffi og kaka
Að borðhaldi loknu mun rithöfundurinn Súsanna Svavarsdóttir lesa úr óbirtri skáldsögu sinni.
Húsið opnar að venju kl. 18:30, en borðhald hefst kl. 19:00. Verð kr. 1.500.