Síðasti fjáröflunarmálsverður Friðarhúss fyrir sumarfrí verður haldinn föstudagskvöldið 25. maí. Borðhald hefst að venju kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr.
Það verða afrísk áhrif í friðarhúsi á föstudaginn, þá verður eldaður karríkjúklingur að afrískum hætti og grænmetispottréttur upprunin í Afríku, með þessu veður borið fram hrisgrjón og brauð.
Fjöllistakonan og alhliðaskemmtikrafturinn Ugla Egilsdóttir treður upp að borðhaldi loknu.
Allt þetta fyrir litlar 1.500 krónur.