Félagsfundur SHA í Friðarhúsi fimmtudaginn 16. apríl kl. 20.
Evrópusambandið hefur tekið örum breytingum á síðustu misserum. Sambandið hefur tekið stór skref í átt að sameiginlegri utanríkisstefnu og hugmyndir um sameiginlega varnar- og öryggisstefnu hafa verið ofarlega á blaði. Hvert stefnir Evrópusambandið í hernaðarmálum?
* Haraldur Ólafsson veðurfræðingur og félagi í SHA reifar hernaðarstefnu ESB eins og hún birtist m.a. í Lissabonsáttmálanum.
Almennar umræður.