Skip to main content

Vestræn hermaðarstefna og við – fundur í Friðarhúsi

By Uncategorized

Opinn félagsfundur MFÍK verður föstudaginn 17. maí kl. 19 í Friðarhúsi

Þórarinn Hjartarson flytur erindið: VESTRÆN HERNAÐARSTEFNA OG VIÐ

Fjallað verður um tafl heimsveldanna nú um stundir, ekki síst í Sýrlandi og Miðausturlöndum, um stuðning Íslands við nefnda hernaðarstefnu og um viðbrögð og viðbragðaskort íslenskra friðarsinna við henni.

Léttur kvöldverður seldur á kr. 1.500 í upphafi fundar. Húsið opnar kl. 18.30. Takið endilega með ykkur gesti. Allir velkomnir.

Stjórn MFÍK

1. maí kaffi SHA

By Uncategorized

Morgunkaffi SHA á 1. maí er víðfræg samkoma og í hugum margra ómissandi hluti af baráttudegi verkalýðsins. Húsið opnar kl. 11, en ganga verkalýðsfélaganna fer af stað kl. 13:30.

Allir velkomnir í 1. maí-kaffið í Friðarhúsi, Njálsgötu 87.

Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi

By Uncategorized

Föstudagskvöldið 26. apríl n.k., kvöldið fyrir kosningar, verður fjáröflunarmálsverður Friðarhúss. Systa eldar.

Matseðill:

* Kreólahrísgrjón – jambalaya
* Saltfisksalat
* Pannacotta með ávöxtum

Verð kr 1500. Borðhald hefst kl. 19:00.

Taxi to the Dark Side – fimmtudagsbíó í Friðarhúsi

By Uncategorized

Heimildarmyndin Taxi to the Dark Side hlaut Óskarsverðlaunin sem besta heimildarmynd ársins 2007. Hún segir frá örlögum leigubílsstjóra í Afganistan sem tekinn var höndum grunaður um tengsl við hryðjuverkamenn og barinn til bana af bandarískum hermönnum árið 2002. Myndin varpar ljósi á notkun pyntinga í stríðinu í Afganistan og hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli.

Hún verður sýnd í Friðarhúsi fimmtudagskvöldið 4. apríl kl. 20. Allir velkomnir.

Fiskisúpa á föstudaginn langa

By Uncategorized

Fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss fara ekki í frí yfir hátíðarnar. Næsti málsverður verður haldinn að kvöldi föstudagsins langa.

Alvin Níelsson, Lára Jóna Þorsteinsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson galdra fram víðfræga og matarmikla fiski- og sjávarréttasúpu.

Borðhald hefst kl. 19:00. Verð kr. 1.500, allir velkomnir.