Skip to main content

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA

By Uncategorized

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA var haldinn fimmtudaginn 30. nóvember. Rætt var um landsráðstefnu SHA og niðurstöðu hennar, einkum nafnabreytingu, og nálæg verkefni deildarinnar.

Óánægja kom fram með nafnið Samtök hernaðarandstæðinga sem mönnum þykir bera í sér pasifíska afstöðu. Leiðari síðasta Dagfara er skrifaður undir sömu merkjum. Mælist þetta illa fyrir þegar framganga heimsvaldastefnunnar nú um stundir er eins og raun ber vitni sem gefur ástæðu til að skerpa frekar pólitískan (ekki flokkspólitískan) prófíl baráttunnar gegn yfirgangs- og hernaðaröflum okkar daga. Þrír meðlimir deildarinnar sögðu sig úr SHA vegna þessa. Má segja að nærri hafi legið að starf á vegum SHA legðist af fyrir norðan, þótt allir telji málefnin brýn. Það varð þó ekki niðurstaða fundarins heldur fóru fram tilnefningar í stjórn.

Í stjórn Norðurlandsdeildar SHA sitja nú þessir:

Þórarinn Hjartarson formaður, Spítalavegi 17 Akureyri,
thjartar@internet.is
Hallur Gunnarsson, Ásvegi 21 Akureyri,
hallur@thekking.is
Jósep B. Helgason, Hafnarstræti 35, Akureyri

Næsta verkefni samtakanna er að undirbúa Þorláksgönguna Blysför gegn stríði sem gengin hefur verið reglulega á Akureyri síðan jólin 2002.

ÞH

Fjáröflunarmálsverður í Friðarhúsi

By Uncategorized

KokkurFjáröflunarmálsverðir Friðarhúss hafa slegið í gegn og að þessu sinni verður efnt til veislu á fullveldisdaginn, föstudaginn 1. desember.

Boðið er upp á jólahlaðborð með glæsilegum matseðli:

Matseðill:
Heimalöguð sænsk jólaskinka með karöflusalti,
gulrótar-appelsínusalati
og sinnepssósu
Heimagerð lifrakæfa (verður borin fram heit)
og heimagert rúgbrauð að hætti Systu
Karrýsíld
Bananasíld

Listakonan Alexandra Kjuregej mun koma fram á skemmtuninni.

Kræsingarnar kosta einungis 1.500 krónur. Borðhald hefst kl. 19 en húsið verður opnað hálftíma fyrr að venju.

Aðalfundur Norðurlandsdeildar SHA

By Uncategorized

AkureyriAðalfundur Norðurlandsdeildar SHA verður haldinn n.k. fimmtudag í Barnaskólanum á Brekkunni (“Rósenborg”) kl. 20. Í fundarboði kemur fram að rætt verði vítt og breytt um stöðu SHA í ljósi nýrra aðstæðna í hermálinu og þróun alþjóðamála. Ný stjórn verður skipuð og næstu skref ákveðin.

Styðjum baráttu fatlaðra í Palestínu. Gegn hernámi – fyrir réttindum og reisn

By Uncategorized

palestinafrjals 02 Í kvöld, miðvikudag, verður haldinn á Hótel Borg fundur í tilefni af alþjóðlegum samstöðudegi með Palestínu. Um leið og við hvetjum lesendur til að mæta á þennan fund birtum við eftirfarandi grein eftir Svein Rúnar Hauksson, formann Félagsins Ísland-Palestína.

Ár hvert, þann 29. nóvember, er hvatt til samstöðu með baráttu palestínsku þjóðarinnar fyrir sjálfsákvörðunarrétti, að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna. Hernám Palestínu hefur á svæðum sem nú falla undir Ísrael varað frá árinu 1948, en á Gaza og Vesturbakkanum að meðtalinni Austur-Jerúsalem hefur hernámið staðið frá árinu 1967. Ekkert hernám á síðari tímum hefur varað lengur og flóttamannavandinn sem skapaðist 1948 er sá stærsti sem veröldin hefur horft upp á.

Enn bólar ekkert á því að endir verði bundinn á hernám Palestínu. Því síður að ísraelskir valdamenn séu reiðubúnir að viðurkenna þau grundvallarréttindi sérhvers flóttamanns að fá að snúa heim aftur. Augu fjölmiðla hafa undanfarna mánuði beinst að blóðbaðinu á Gazaströnd, en minna verið gætt að byggingu aðskilnaðarmúrins sem heldur stöðugt áfram og stækkun landtökubyggða á Vesturbakkanum, en þetta hvort tveggja útilokar sjálfstæði Palestínu sem fullvalda ríkis.

Sjálfsákvörðunarréttur einskis virtur
Í almennum, lýðræðislegum kosningum 25. janúar s.l., sem fóru eins vel fram og hugsast gat við þær aðstæður sem ísraelska hernámið mótar, fengu listar Hamassamtakanna flest atkvæði eða um 44%. Þetta dugði í góðan meirihluta á löggjafarþinginu (PLC). Í framhaldi af því var mynduð meirihlutastjórn undir forystu Ismail Haniyeh, 43 ára bókmenntafræðings, sem hafði orðið helsti forystumaður Hamas á Gaza eftir morð Ísraelshers á leiðtoga þeirra, Sheik Yassin.

Viðbrögð vesturveldanna hafa verið að refsa palestínsku þjóðinni fyrir að kjósa vitlaust. Ísraelsher hóf nýja herferð gegn íbúum Gazaströnd til að ógilda kosningarnar með aftökum og fjöldamorðum. Yfir 350 manns hafa verið drepnir einungis frá því í júní, þar af meira en helmingur óbreyttir borgarar og meira en 50 börn. Hátt á annað þúsund eru særðir, margir örkumla. Sjálfákvörðunarréttur palestínsku þjóðarinnar er einskisvirtur og þjóðinni sem heild refsað fyrir kosningaúrslitin.

Hernámið veldur fötlun
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægara hlutverki í hertekinni Palestínu en víða annars staðar. Þannig er talsverður hluti heilbrigðisþjónustunnar á hendi samtaka eins og PRCS (palestínska rauða hálfmánans), UHWC (bandalags heilsustarfsnefnda) og PMRS (palestínsku læknishjálparsamtakanna) sem Félagið Ísland-Palestína hefur stutt um árabil. Þá gegna samtök öryrkja sívaxandi hlutverki en um margt er það starf rétt að byrja. Bandalag fatlaðra í Palestínu byggir á einstaklingsaðild, enda ekki enn orðin til sjálfstæð félög einstakra hópa. Hernámið hefur bitnað á allri palestínsku þjóðinni og raunar á Ísraelum líka, en á engum eins og fólki með fötlun. Hernámið og aðgerðir Ísraelsher hafa orsakað fötlun hjá þúsundum manna, blindu, mænusköddun, eyrnardeyfu svo eitthvað sé nefnt.

Á þessum alþjóðlega samstöðudegi með réttindabaráttu palestínsku þjóðarinnar vill Félagið Ísland-Palestína beina augum fólks sérstaklega að fötluðum í hertekinni Palestínu, hvernig hernámið orsakar fötlun og gerir fólki með fötlun illmögulegt að lifa lífinu. Barátta fatlaðra gegn hernámi og fyrir réttindum og reisn kallar á stuðning okkar.

  • Í tilefni dagsins er haldinn samstöðufundur á Hótel Borg í kvöld, miðvikudag kl. 20, þar sem Ziad Amro, helsti frumkvöðull blindra og fatlaðra og stofnandi Öryrkjabandalags Palestínu, er aðalræðumaður. Hann mun fjalla fjalla um áhrif hernáms á líf þjóðar, með sérstakri áherslu á fólk með fötlun. Ziad missti sjálfur sjónina af völdum hernámsins.

Sveinn Rúnar Hauksson læknir,
formaður Félagsins Ísland-Palestína