Skip to main content

Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði: Ísland út NATO!

By Uncategorized

nato nei Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði (UJH) héldu aðalfund sinn 15. desember og framhaldsaðalfund 19. janúar. Meðal ályktana sem fundurinn samþykkti var eftirfarandi:

Ályktun varðandi herinn og NATO

UJH fagna því að bandaríski herinn sé nú farinn frá Miðnesheiði og að Ísland sé nú loksins herlaust land. UJH ítreka jafnframt þá skoðun sína að Ísland eigi að segja sig úr hernaðarbandalaginu NATO.

http://www.mir.is

Málsverður í Friðarhúsi, föstudag

By Uncategorized

KokkurHinir sívinsælu fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss halda áfram á nýju ári. Föstudagskvöldið 26. janúar verður efnt til veislu. Birna Þórðardóttir verður yfirkokkur að þessu sinni. Matseðillinn er einfaldur:

Ástríðulasagne að hætti Birnu Þórðardóttur

Heimabökuð brauð með heimagerðu pestói og hummus að hætti Systu og Elvars

Borðhald hefst kl. 19 en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Verð kr. 1.500.

Skemmtiatriði verða meðan á matnum stendur.