Samstarfshópur friðarhreyfinga fundar í Friðarhúsi.
Staðfest hefur verið að rithöfundurinn Óskar Árni Óskarsson mun lesa úr verkum sínum á fjáröflunarmálsverði Friðarhúss á föstudagskvöld (sjá auglýsingu hér að neðan).
Jafnframt verður boðið upp á óvænt tónlistaratriði.
Fjáröflunarmálsverðurinn í Friðarhúsi, föstudagskvöldið 30. nóvember er glæsilegt jólahlaðborð, en matseðillinn er á þessa leið:
Heimalöguð sænsk jólaskinka með karöflusalti, gulrótar appelsínusalati og sinnepssósu
Heimagerð lifrakæfa (verður borin fram heit) og heimagert rúgbrauð
Karrýsíld
Tómatsalsasíld.
Fyrir þá sem ekki borða kjöt verður hnetusteik.
Kaffi og konfekt
Guðrún V. Bóasdóttir(Systa) sér um matseld.
Verð kr 1500. Húsið verður opnað kl. 19.
Eftirfarandi tilmæli til fréttastofu Ríkisútvarpsins voru samþykkt á landsfundi SHA um helgina. (Öðrum fjölmiðlum er að sjálfsögðu heimilt að tileinka sér efni þeirra.)
Tilmæli til fréttastofu Ríkisútvarpsins
Í áratugi hafa áróðursheitin varnarsvæði, varnarlið, varnarbúnaður o.s.frv. tíðkast í umræðu um umsvif og aðstöðu bandaríska hersins á Íslandi. Nú þegar herinn er farinn og blekkingarnar um varnargildi hans öllum ljósar þjóna þessi gömlu áróðursheiti ekki hagsmunum neinna lengur (annarra en þeirra sem falsa vilja söguna). Landsfundur SHA, haldinn 24. nóvember 2007, fer því þess á leit við fréttastofu RÚV að hún leggi þessa málnotkun af og noti í staðinn hlutlaus orð s.s. setulið, herstöðvar og herstöðvasvæði um þessi fyrirbrigði en tengi það hvorki vörnum né öryggi.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á landsfundi SHA í Friðarhúsi, laugardaginn 24. nóvember 2007:
Um almannavarnir og heræfingar
Landsfundur SHA haldinn laugardaginn 24. nóvember 2007 varar sterklega við þeirri tilhneigingu sem orðið hefur vart á síðustu misserum að spyrða saman borgaralegar öryggisstofnanir samfélagsins, svo sem almannavarnir, landhelgisgæslu, lögreglu og björgunarsveitir við hernaðarlega starfsemi – eins og gert hefur verið m.a. í tengslum við heræfingar. Til dæmis hafa heræfingar erlendra sveita hér við land verið réttlættar með vísan til slysavarna, viðbragða við mengunarslysum og annars álíka – sem augljóslega er þó á verksviði borgaralegra aðila.