Nýir og ungir félagar í SHA hittast og bera saman bækur sínar í Friðarhúsi.
Hinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn n.k. föstudag, 25. janúar.
Nanna Rögnvaldardóttir stýrir eldamennskunni og Ingibjörg Haraldsdóttir skáldkona les úr nýlega útkominni bók sinn.
Takið kvöldið frá. Nánari upplýsingar birtast síðar.
Nanna Rögnvaldardóttir sér um matseldina að þessu sinni.
Einkasamkvæmi í Friðarhúsi.
Almenn samstaða virtist vera á Alþingi í gær, 17. janúar, um þingsályktunartillögu um fordæmingu á fangabúðunum í Guantanamo. Þingmenn úr öllum flokkum tjáðu sig um hana og voru allir fylgjandi henni. Þetta var fyrri umræða um tillöguna og var henni vísað áfram til utanríkismálanefndar og annarrar umræðu. Tillagan, sem borin er fram af þingmönnum Vinstri grænna, hljóðar svo:
Alþingi fordæmir ólöglega og ómannúðlega meðferð á föngum í búðum Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu og felur ríkisstjórninni að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að þeim verði lokað.
Tillöguna með athugasemdum er að finna hér:
http://www.althingi.is/altext/135/s/0107.html
Feril málsins og umræður er að finna hér:
http://www.althingi.is/dba-bin/ferill.pl?ltg=135&mnr=107