Myndband um NATO-væðinguna

By Uncategorized

othaegilegarbanner Ung Vinstri græn hafa sett á netið myndband sem þau kalla NATO-væðing Íslands. Myndbandið má nálgast á vefslóðinni www.vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/3321.

Þá hafa Ung Vinstri græn einnig gefið út flugrit undir titlinum Óþægilegar staðreyndir um varnarmálafrumvarp utanríkisráðherra. Þetta flugrit ásamt nýlegum greinum eftir félaga í UVG um þessi málefni má nálgast á vefslóðinni www.vinstri.is/default.asp?news_id=7249.

Heiða spilar á föstudagsmálsverði

By Uncategorized

HeidaHinn mánaðarlegi fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudagskvöldið 25. apríl. Systa sér um matseldina og er matseðillinn á þessa leið:

* spönsk paella
* tortilla (spönsk karöflueggjakaka)
* brauð með hinu víðfræga gríska taramossalati

Borðhald hefst kl. 19 en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Verð kr. 1.500.

Tónlistarkonan Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða trúbador) mun taka lagið

Friðarhús miðvikudagskvöld: fundur um friðarráðstefnu í Kaíró

By Uncategorized


Miðvikudagskvöldið 23. apríl kl. 20
munu Rósa Eyvindardóttir og Vésteinn Valgarðsson segja frá ferð sinni á sjöttu Kaíró-ráðstefnuna um lýðræði og frið í Mið-Austurlöndum á opnum félagsfundi SHA. Spurningar og umræður verða að erindi loknu.

Meðal helstu viðfangsefna ráðstefnunnar voru málefni Palestínu og zíonismi, heimsvaldastefna Bandaríkjanna í Írak og víðar, stjórnmálaástandið og stéttabaráttan í Egyptalandi, ímynd Mið-Austurlanda í vestrænum fjölmiðlum og fleira.

Auk þess að sitja ráðstefnuna reyndi Vésteinn ásamt hópi útlendinga að komast frá Egyptaland inn á Gaza, en tókst ekki. „[Við fórum með] rútu frá Kaíró í gegn um Sínaí og ætluðum að reyna að koma táknrænum flutningabíl með hjálpargögnum inn í Rafah á Gaza. Það tókst okkur ekki; egypska lögreglan og leyniþjónustan vörnuðu okkur för 200 km frá landamærunum — það er sem sagt þar sem herkvíin byrjar (…) það var súrt að upplifa það svona beint að Egyptar tækju svona virkan þátt í herkvínni um Gaza. Ég mun segja frá þessu líka annað kvöld.“

Um Kaíró-ráðstefnurnar, sjá: https://fridur.is/antiwar/kairo
5. ráðstefnan 29. mars – 1. apríl 2007
Yfirlýsing 5. ráðstefnunnar
Yfirlýsing 6. ráðstefnunnar