Fundur í Söguhópi SHA.
Félagsfundur RV í Friðarhúsi.
Málsverður í Friðarhúsi.
Komið er að fyrsta málsverði haustsins í Friðarhúsi. Auk þess að vera góð fjáröflun fyrir rekstur húsnæðisins, eru fjáröflunarmálsverðirnir góður félagslegur vettvangur fyrir hernaðarandstæðinga til að koma saman og leggja á ráðin.
Guðrún Bóasdóttir (Systa) sér að þessu sinni um eldamennskuna, sem tekur mið af árstímanum og nýjustu uppskeru á markaðnum.
* Rauðrófusúpa (Bortsj) með kjötsnúðum
* Tortilla (spænsk kartöflueggjakaka)
* Kaffi og gulrótarkaka
Verð kr. 1.500. Borðhald hefst kl. 19 föstudaginn 25. september.
2. október næstkomandi hefst á Nýja Sjálandi heimsganga í þágu friðar og tilveru án ofbeldis. Henni lýkur þrem mánuðum síðar, 2. janúar 2010 við rætur fjallsins Aconcagua í Argentínu, hæsta fjalls Suður-Ameríku.
2. október er fæðingardagur Mahatma Gandhis og Sameinuðu þjóðirnar hafa tilnefnt þann dag sem „Alþjóðlegan dag tilveru án ofbeldis“.
Göngunni er komið af stað af samtökunum „Heimur án stríðs“ sem eru alþjóðleg og hafa starfað í 15 ár að friðarmálum og andófi gegn ofbeldi.
Tilgangur göngunnar er að:
- Ná fram útrýmingu kjarnavopna; hlutfallslegri og stöðugt meiri fækkun annarra vopna; undirritun samninga milli þjóða um að ráðast ekki gegn öðrum; og að ríkisstjórnir hafni stríði sem aðferð til að leysa ágreining.
- Viðurkenna og hefja til vegs og virðingar bestu eiginleika ólíkra menningarsamfélaga og þjóða jarðarinnar.
- Sameina vilja fólks allsstaðar til að binda endi á þá plágu sem stríð eru.
- Skapa alþjóðlega, félagslega vitund sem fordæmir allt ofbeldi hvernig sem það birtist (líkamlegt, sálrænt, byggt á kynþætti, trúarbrögðum, efnahagslegt, kynferðislegt), sem er svo útbreitt og viðurkennt í þjóðfélögum hvarvetna.
- Alþjóðleg vitund sem fordæmir allt ofbeldi.
Gengið verður um allar heimsálfur og í hverri borg sem gangan fer um verða skipulagðir einhverjir viðburðir.
Nánari upplýsingar er að finna á íslenskri vefsíðu göngunnar, heimsganga.is.