All Posts By

Stefán Pálsson

MFÍK – opinn félagsfundur 8. nóv.

By Uncategorized

mfikMFÍK heldur opinn félagsfund mánudaginn 8. nóvember kl. 19 í Friðarhúsi v/Snorrabraut.

Margrét Guðnadóttir, læknir, veirufræðingur og baráttukona mætir á fundinn og segir frá starfi sínu og rannsóknum.

Léttur kvöldverður á hóflegu verði í upphafi fundar.

Húsið opnar 18.30.

Takið með ykkur gesti. Allir velkomnir!

Landsráðstefna SHA, 24. nóv. & breytingar á lögum

By Uncategorized

Ákveðið hefur verið að landsráðstefna SHA fari fram miðvikudagskvöldið 24. nóvember n.k. í Friðarhúsi frá kl. 18 til 22. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður þar rætt um stjórnarskránna og friðarmálin – en kosningar til stjórnlagaþings fara fram fáeinum dögum síðar.

Kynntar hafa verið tillögur að breyttum lögum samtakanna, eru það einkum orðalagsbreytingar og smávægilegar lagfæringar. Betur verður gert grein fyrir breytingartillögum þessum í Dagfara, fréttabréfi SHA sem væntanlegt er á næstunni. Núgildandi lög SHA má finna hér, en gert er ráð fyrir að eftir breytingu verði lögin á þessa leið:

1.
Samtökin heita Samtök hernaðarandstæðinga, skammstafað SHA. Merki SHA er Ísland úr Nató, herinn burt á bylgjumynduðu Íslandskorti í fánalitum, sem er frá 1976, höfundur Edda Sigurðardóttir.

2.
Markmið Samtaka hernaðarandstæðinga eru þessi:
a) að Ísland segi upp aðildinni að Nató og standi utan allra hernaðarbandalaga.
b) að Ísland segi formlega upp herstöðvasamningnum við Bandaríki Norður-Ameríku.
c) að aldrei verði leyfðar herstöðvar né heræfingar á Íslandi né í íslenskri landhelgi.
d) að Ísland og íslensk landhelgi verði friðlýst fyrir notkun, umferð og geymslu kjarnorkuvopna.
e) að sett verði í stjórnarskrá að Ísland fari aldrei með ófriði gegn öðrum þjóðum né styðji slíkar aðgerðir annarra þjóða í orði né verki.
f) samtökin berjast gegn hverskonar kjarnorkuvígbúnaði í heiminum og taka þátt í alþjóðlegu friðarstarfi.

3.
Allir þeir sem aðhyllast þessi markmið samtakanna og greiða árgjald til þeirra geta orðið félagar í Samtökum hernaðarandstæðinga, enda vinni þeir á engan hátt gegn málstað samtakanna. Félagsaðild er einstaklingsbundin.

4.
Samtökin afla sér fjár með árgjöldum, frjálsum framlögum, útgáfustarfsemi og sérstökum fjáröflunaraðgerðum.

5.
Landsfundur Samtaka hernaðarandstæðinga fer með æðsta ákvörðunarvald samtakanna. Hann samþykkir stefnuskrá, svo og starfsáætlun til eins árs. Landsfundur kýs 9 manna miðnefnd, sem starfar í umboði hans og fer með ákvörðunarvald milli landsfunda. Allir skuldlausir félagar samtakanna eru kjörgengir og atkvæðisbærir á landsfundi. Landsfund skal halda að hausti ár hvert. Miðnefnd skal boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Dagskrá landsfundar skal vera þessi:
a) Skýrsla miðnefndar.
b) Ársreikningar félagsins
c) Starfsáætlun lögð fram til umræðu og samþykktar.
d) Kosningar:
Formaður skal kosinn sérstaklega, síðan 8 aðalmenn í miðnefnd og 3 til vara. Ennfremur 2 skoðunarmenn reikninga og 2 til vara. Kosið er til eins árs eða til næsta landsfundar.
e) Ákvörðun um árgjald félagsmanna.
f) Lagðar fram ályktanir frá miðnefnd til umræðu og afgreiðslu.
g) Lagabreytingar.
h) Önnur mál.

6.
Miðnefnd kýs ritara og gjaldkera úr sínum hópi. Gjaldkeri annast reikningshald á hennar vegum og skilar reikningum til landsfundar. Allar helstu ákvarðanir miðnefndar verði kynntar á vefsíðu samtakanna og sendar út rafrænt á póstlista.

7.
Formaður boðar miðnefndarfundi. Í forföllum formanns stýrir gjaldkeri fundi. Fundur miðnefndar er ákvörðunarfær ef minnst 5 atkvæðisbærir miðnefndarmenn sækja fund. Við atkvæðagreiðslu ræður einfaldur meirihluti af 9 úrslitum mála, þ.e. minnst 5 atkvæði. Fundargerðabók skal haldin og í hana skráð það sem gerist á miðnefndarfundum. Hætti formaður eða forfallist til lengri tíma skal miðnefnd ákveða hvernig við skal bregðast:
a) Velja formann úr eigin hópi.
b) Velja formann úr hópi kjörgengra félagsmanna.
c) Starfa án formanns til næsta landsfundar.

8.
Heimilt er hernaðarandstæðingum að mynda starfshópa og landshlutadeildir innan samtakanna sem vinni að verkefnum í samræmi við starfsáætlun landsfundar en hafi um það samstarf við miðnefnd.

9.
Samtök hernaðarandstæðinga gefa út málgagnið Dagfara, halda úti vefsíðunni Friður.is og reka netpóstlista. Bóka og skjalasafn samtakanna er aðgengilegt almenningi. Miðnefnd hefur umsjón með allri útgáfu samtakanna.

10.
Lögum þessum er aðeins heimilt að breyta á landsfundi og gildir þá einfaldur meirihluti greiddra atkvæða. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist miðnefnd fyrir lok ágústmánaðar. Þær skulu fylgja fundarboði landsfundar. Breytingartillögur sem síðar koma fram má þó bera undir atkvæði, en þurfa þá samþykki ¾ hluta fundarmanna á landsfundi.

Friðarmálsverður, föstudagskvöld

By Uncategorized

Hinn mánaðarlegi fja´röflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn n.k. föstudagskvöld, 29. október. Þar verður endurtekinn matseðilinn frá því í fyrra þar sem rauðrófusúpa Guðrúnar Bóasdóttur (Systu) sló í gegn og kláraðist. Matseðillinn verður á þessa leið:

* Rauðrófusúpa (Bortsj) með kjötsnúðum
* Tortilla (spænsk kartöflueggjakaka)
* Kaffi og súkkulaðikaka(með rauðrófum)

Sá gamalkunni herstöðvaandstæðingur Kristján Guðlaugsson mætir, tekur lagið og segir frá.

Borðhald hefst kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Allir velkomnir. Verð kr. 1.500.

Gamalt baráttumál nær fram að ganga

By Uncategorized

Þær ánægjulegu fregnir bárust í dag að borgarstjórn Reykjavíkur hefði samþykkt að gerast aðili að samtökunum Mayors for Peace, sem berjast fyrir útrýmingu kjarnorkuvopna í veröldinni.

Við í Samtökum hernaðarandstæðinga fögnum þessum fregnum sérstaklega, enda langt síðan við hvöttum Reykjavíkurborg til þess að stíga þetta skref.

Það var á árinu 2000 sem Sverrir Jakobsson og Einar Ólafsson, þá formaður og ritari SHA, gengu á fund Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Með í för höfðu þeir kynningarefni um samtökin sem snarað hafði verið á íslensku ásamt leiðbeiningum um hvað í aðildinni fælist. Borgarstjóri tók ágætlega í hugmyndina, en málið sofnaði í borgarkerfinu og náði því ekki fram að ganga.

Betur gekk þó með hitt aðalerindi fundarins, þar sem SHA hvöttu til þess að Reykjavíkurborg yrði friðlýst fyrir geymslu og umferð kjarnorkuvopna. Náði það fljótlega fram að ganga og var samþykkt í borgarstjórn með öllum greiddum atkvæðum nema einu.

En nú, tíu árum síðar hefur þetta gamla baráttumál SHA náð fram að ganga. Því ber að fagna.

Stefán Pálsson