All Posts By

Stefán Pálsson

Málsverður aprílmánaðar

By Uncategorized

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss, sá fyrsti eftir stórtækar framkvæmdir á ytra byrði hússins, verður haldinn föstudagskvöldið 27. apríl n.k. og hefst borðhald að venju kl. 19.

Matseldin verður að þessu sinni sameiginlegt verkefni Láru Jónu Þorsteinsdóttur, Þorvaldar Þorlvaldssonar og Alvins Níelssonar, félaga í SHA.

Matseðill:

* Víðfræg fiskisúpa

* Grænmetissúpa

Nánari upplýsingar um dagskrá verða birtar síðar. Verð kr. 1.500.

VÍK og MFÍK í Friðarhúsi 18. apríl

By Uncategorized

MFÍK og VÍK (VInáttufélag Íslands og Kúbu efna til sameiginlegs fundar í Friðarhúsi miðvikudagskvöldið 18. apríl n.k. kl. 19.

Margrét Guðmundsdóttir, Eyjólfur Eyvindarson og fleiri segja frá og sýna myndir frá dvöl sinni á Kúbu í desember síðastliðnum.

Léttur kvöldverður seldur í upphafi fundar.

Allir velkomnir.

30. mars í Friðarhúsi

By Uncategorized

30. mars er mikilvæg dagsetning í sögu íslenskrar friðarbaráttu, en þann dag var aðild Íslands að Nató samþykkt á Alþingi þrátt fyrir víðtæk mótmæli og kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Að þessu sinni ber 30. mars upp á síðasta föstudag í mánuði, en þá daga hafa fjáröflunarmálsverðir Friðarhúss einatt farið fram. Því verða slegnar tvær flugur í einu höggi n.k. föstudagskvöld með málsverði og dagskrá.

Matseðill:

* Lasagne að hætti Birnu Þórðar – hið besta norðan Bologna – grænmeti
* Heimabakaðar brauðbollur að hætti Jóns & Siggu
* Systu-Pavlova með ávöxtum

Að mat loknum verður sýnd fágæt stuttmynd frá árinu 1999, sem gerir því skil þegar Birna Þórðardóttir hóaði í nokkra félaga sína og efndi til einka-Keflavíkurgöngu, frá Reykjavík til Keflavíkur á 50 ára afmæli Nató-aðildar.

Trúbadorinn Svavar Knútur mætir með gítarinn, tekur lagið og stjórnar fjöldasöng.

Borðhald hefst að vanda kl. 19. Verð kr. 1.500.

Framkvæmdir við Friðarhús – viltu gerast hluthafi?

By Uncategorized

Um þessar mundir er unnið að stórframkvæmdum við húseignina Njálsgötu 87, sem hýsir Friðarhús SHA. Meðal annars verður þak hússins lagfært, unnið í gluggum og byggingin öll steinuð að utan. Þessar endurbætur hafa verið brýnar lengi og fulltrúar Friðarhúss hvatt til þess að ráðist yrði í þær á vettvangi húsfélagsins. Að þeim loknum verður Njálsgata 87 sú bæjarprýði sem maklegt er.

Aðalfundur Friðarhúss SHA ehf var haldinn á dögunum. Þar voru kynntir reikningar sem sýndu afar jákvæða stöðu. Langt er síðan félagið varð skuldlaust við lánastofnanir, en eina skuld þess er við Samtök hernaðarandstæðinga sem greiðist niður jafnt og þétt sem afsláttur á leigu. Stórframkvæmdirnar nú munu þó reyna á fjárhaginn. Því er mikilvægt að fjáröflunarmálsverðir hússins verði vel sóttir á næstunni, sem hingað til. Það er helsta tekjulind félagsins.

Þá er minnt á að enn er hægt að kaupa hlutabréf í Friðarhúsi SHA ehf. Verð hvers hlutar er 15.000 krónur og má ganga frá greiðslu í gegnum netbanka (reikn.nr. 0130-26-002530 kt. 600404-2530, þar sem tekið væri fram í skýringu nafn hluthafa). Eflaust eru einhverjir félagar í SHA sem ekki eru í hópi hinna nærri 300 hluthafa eða aðrir sem gætu hugsað sér að auka við hlutafjáreign sína og skjóta þannig enn styrkari stoðum undir rekstur þessa mikilvæga húsnæðis. Eitt er víst að ekki mun friðarsinna skorta verkefni á næstu misserum.

8. mars

By Uncategorized

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti- Vorið kallar

Iðnó, kl. 17-18:30

Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir 

Ávörp:

* Claudia Ashonie: Menntun kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og atvinna að námi loknu
* Védís Guðjónsdóttir: Saman eða sundur
* Sigríður Rut Hilmarsdóttir: Vinna með barnalýðræði
* Steinunn Þóra Árnadóttir: Kjósum burt NATÓ!
Soumia Islami: Barátta kvenna í „arabíska vorinu“
* Guðrún Jónsdóttir: „Og þær lifðu hamingjusamar til æviloka.“ – Umfjöllun um vændi og Kristínarhús
* Guðrún Hannesdóttir: Mennska

* Magga Stína syngur við undirleik Kristins Árnasonar

Miðnefnd SHA fundar

By Uncategorized

Fastir miðnefndarfundir Samtaka hernaðarandstæðinga eru fyrsta þriðjudag í mánuði, kl. 19:30 í Friðarhúsi. Minnt er á að miðnefndarfundir eru opnir öllum félagsmönnum í samtökunum.

Skýringar á árásarhneigð Vesturveldanna

By Uncategorized

eftir Þórarinn Hjartarson

Bandaríkin og bandamenn þeirra flytja nú herafla m.a. frá Írak og Líbíu austur til stuðningsríkja sinna við Persaflóa og ennfremur austur á Kínahaf.

Obama og Clinton segja bæði ítrekað: „engin meðul eru útilokuð“ í viðureigninni við Írani. Þá meina þau „taktísk“ kjarnorkuvopn. Árás á Sýrland er stórmál. Árás á Íran er þó miklu stærra mál: Miðausturlönd í bál og brand með hringverkanir um allan heim. Enda snýst árás á Íran ekki um Íran. Hún snýst um heimsyfirráð.

Nú er ófriðvænna á jarðarkringlunni en verið hefur frá 1945. Kreppa og stríð eru nátengd. Í valdatafli heimsveldanna eru gömlu stórveldin, Vesturveldin undir forustu USA, á undanhaldi á mörkuðum vöru og fjármagns og standa frammi fyrir ört dýpkandi kreppu. Staðan er um margt lík því sem hún var upp úr 1930, kreppu fylgja harðnandi stjórnmál, réttindi þegnanna eru skert, ófriðarskýin hrannast upp. Munurinn er helst sá að þá (og einnig fyrir fyrri heimsstyrjöld) var það ungt efnahagsveldi (Þýskaland) sem sýndi mesta árásarhneigð. Það kom seint að veisluborðinu og þurfti að ryðja sér til rúms með valdi. Nú eru hins vegar gömlu heimsveldin grimmust, þau reyna að viðhalda stöðu sinni með kjafti og klóm.

Þessi hliðstæða við fyrri heimskreppu kapítalismans er lærdómsrík. Önnur hliðstæða er þó nær og beinni. Yfirstandandi leikrit um kjarnorkuáætlun Írana, og meðfylgjandi refsiaðgerðir og hótanir, er einfaldlega endurflutt stórveldaleikrit frá árunum 2001-2003. Þá fylktu Bandaríkin liði sínu og fjölmiðlaneti, breyttu Saddam Hússein í skrímsli og léku útpælda blekkingarleiki – í fjölmiðlum og bak við tjöldin – og réðust svo á Írak. Átyllan var sú sama og nú: Hann hefur gjöreyðingarvopn! Dugir nákvæmlega sama sjónarspil virkilega á okkur tvisvar?

Afganistan, Írak, Líbía, Sýrland og Íran hafa ýmist orðið fyrir innrás eða hafa hana hangandi yfir sér. Össurar allra Vesturlanda sameinast og segja að þær íhlutanir snúist um mannúð og lýðræði. Þeir vita að það er lygi. Ástæðurnar eru aðrar. Miðausturlönd eru efnahagslegt lykilsvæði, hafandi mestan olíuforða heimsins. Íhlutanirnar eru gamaldags ránsleiðangrar eftir svarta gullinu. Fleira kemur þó til. Öll þessi ríki tilheyra óformlegu ríkjabandalagi gegn yfirdrottnun Vesturlanda. Þau eru stuðningsríki helstu keppinauta þeirra, Kínverja og Rússa. Það er glæpur.

Þetta tvennt nægir þó ekki til að skýra afar herskáa hegðun Bandaríkjanna og bandamanna þeirra. Þar við bætist gjaldmiðlastríð sem tengist stöðu dollarsins. Eftir að dollarinn varð heimsgjaldeyrir (Bretton Woods kerfið eftir 1945) og aðrir gjaldmiðlar voru bundnir við hann neyddi það þjóðir heims til að að versla í dollurum og kaupa amerískar vörur, og seðlabanka heimsins til að safna varasjóðum í dollurum. Olíu- og orkuviðskipti fara til dæmis að mestu fram í dollurum. Þegar versla skal með olíu verða ríkin að skaffa sér dollara, þ.e.a.s að versla við USA, kaupa bandarísk ríkisskuldabréf m.m. – og þar með að fjármagna bandarískan ríkisfjárhalla og viðskiptahalla – á meðan Bandaríkin rétta hallann einfaldlega með því að prenta fleiri dollara. Nú er svo komið að peningamagn Bandaríkjanna er fjórfalt meira en verðgildi allra bandarískra eigna, eigna sem eru veðsettar margfaldlega upp í topp fyrir skuldunum. Staðreyndin er sú að fjármálakerfi Bandaríkjanna og jafnframt drottnunarstaða þeirra á heimsvísu er stendur og fellur með þessari drottnunarstöðu dollarsins. Sú staðreynd skýrir betur en annað dæmafáa árasarhneigð þeirra á seinni árum. Staða dollarsins skal varin. Höfuðglæpur framantalinna ríkja er sá að ógna henni.

Versti glæpur Saddams Hússein var að auglýsa árið 2000 að hann myndi færa olíuviðskipti Íraks yfir í evrur eftir fjögur ár. Þremur árum síðar réðust USA og bandamenn á landið. Síðan hafa fleiri raddir talað fyrir því að hnekkja stöðu dollarsins, m.a. Vladimir Pútín. Muammar Gaddafí fór fyrir hreyfingu um ný samtök Afríkuríkja og nýtt fjármálakerfi þeirra þar sem sameiginlegur gjaldmiðill þeirra yrði gulldínar í stað dollars. Hreyfing þessi hafði mikið fylgi og beinar aðgerðir voru undirbúnar – en voru stöðvaðar með innrásinni í Líbíu. Það ríki sem eftir 2005 hefur skýrast og ítrekað hvatt til að hnekkja stöðu dollarsins eru Íranir. Þeir kalla hann „ekki lengur pening heldur pappírsrusl“. Viðbrögð heimspressunnar eru að kalla Íran alræðisríki og ógnun við heiminn. Svo koma æ fleiri refisaðgerðir og æ opinskárri stríðshótanir gegn Íran. Sjáið þið samhengið?

Trompspil Vesturveldanna eru tvö: Hernaðaryfirburðir og (vestræna) heimspressan. Heimspressan er jafn virk í stríðsæsingum og bresk og þýsk blöð voru 1914. Hún er hljóðfæri sem heimsvaldasinnar spila á. Þeir búa þar til blóraböggla og skúrka eftir þörfum, búa til tilefni og tækifæri til íhlutana vítt um lönd. Stóru fréttastofur heimsvaldasinna slá taktinn og yfir 95% vestrænna fréttamanna hreyfa kjafta sína í þeim takti. Nú gelta þeir um glæpi kerkastjórnarinnar í Íran og Sýrlandsforseta. En t.d. um heimsvaldakerfi dollarsins? Ekki orð.

Viðbætir
Grein þessi lá hjá Fréttablaðinu í mánuð. Síðan hefur það gerst að vestræna Blokkin herðir umsátrið um Sýrland en Rússar og Kínverjar andæfa. Auk þess hefur ESB sett olíuviðskiptabann á Íran en Íranir beygja sig ekki. Það er merki um að Bandaríkin hafi tuktað ESB til traustara fylgis við sig. Innan heimskapítalismans hefur lengi sést viðleitni einstakra hagkerfa til að losna úr heljargreipum dollarimperíalismans. Sundrungin í aðdraganda Íraksstríðsins 2003 var merki um þetta: ESB-veldin (einkum Frakkland og Þýskaland) virtust ætla að skora Sam frænda á hólm og taka tilboði Saddams um olíuviðskipti í evrum. Bush og Obama hafa svarað með því að ógna eða múta á víxl. Aðgerðirnar gegn Íran eru sálfræðistríð, til þess hugsað að hræða öll ríki frá því að óhlýðnast stóra bróður. Staðfesta Írana verður afgerandi um það hversu lengi heljarkrumlur dollarimperíalismans ná að halda takinu. Tíminn vinnur með Írönum – ef þeir fá hann.

Febrúarmálsverður Friðarhúss

By Uncategorized

Fjáröflunarmálsverður Friðarhúss verður haldinn föstudaginn 24. febrúar nk.

Matseldinn verður í höndum Daníels Hauks Arnarssonar og Snærósar Sindradóttur. Þau bjóða upp á:

* Fiskisúpu

* Grænmetissúpu

* Brauð

Tónlistarmennirnir Gímaldin og Skúli mennski taka lagið að borðhaldi loknu.

Sest verður að snæðingi kl. 19:00. Verð kr. 1.500. Allir velkomni.

Kjúklingaforingi í Friðarhúsi

By Uncategorized

Heimildarmyndin Íslenska sveitin eftir Kristinn Hrafnsson og Friðrik Guðmundsson vakti mikla athygli fyrir fáeinum misserum. Hún dró upp ógleymanlega mynd af hinu svokallaða friðargæsluliði Íslendinga á flugvellium í Kabúl, sem margir töldu bera skýr merki þess að vera hersveit.

Erlenda útgáfa myndarinnar, The Chicken Commander, var enn beittari og áhrifameiri. Myndin hefur öðru hvoru verið sýnd í Friðarhúsi á vegum Samtaka hernaðarandstæðinga.

N.k. mánudag, 13. febrúar kl. 20, verður myndin sýnd á ný í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Friðarsinnar eru hvattir til að mæta.