Stöðugt berast fréttir af undirbúningi aðgerða gegn Íraksstríðinu víðs vegar um heim 18.-19. mars. Á vefsíðu The Troops Out Now Coalition (TONC) í Bandaríkjunum má finna lista yfir fyrirhugaðar aðgerðir í 21 fylki í Bandaríkjunum og 17 öðrum löndum (sjá hér). Á vefsíðu United for Peace and Justice í Bandaríkjunum er listi yfir 60 staði í Bandaríkjunum þar sem aðgerðir hafa verið auglýstar, sjá hér. Eflaust er þetta einungis brot af öllum þeim aðgerðum sem eru í undirbúningi, enda eru enn 5 vikur til stefnu og stöðugt bætast við nýir staðir.
Alþjóðlegu samfélagsþingin (World Social Forum), sem er nýlega lokið í Bamako í Malí og Caracas í Venesúela, hafa hvatt til aðgerða þessa daga um allan heim og sömuleiðis hefur undirbúningsfundur fyrir Evrópska samfélagsþingið (European Social Forum), sem verður í Aþenu 4.-7. maí næstkomandi, hvatt til aðgerða hvarvetna í Evrópu. Þessar ályktanir má nálgast á ofangreindri vefsíðu The Troops Out Now Coalition.
Eins og fram hefur komið eru Samtök herstöðvaandstæðinga að undirbúa aðgerðir í Reykjavík 18. mars. Við hvetjum friðarsinna og andstæðinga Íraksstríðsins til að fylgjast með undirbúningnum og taka þátt í honum. Þeir sem vilja fá boð um undirbúningsfundi geta haft samband við formann SHA, Stefán Pálsson, í síma 551-2592 eða 617-6790 eða gegnum netfangið stefan.palsson@or.is.