Baráttufundur gegn Íraksstríðinu í Austurbæ að kvöldi 19. mars tókst með ágætum. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Helgi Hjörvar fluttu kröftug ávörp, Bragi Ólafsson rithöfundur las kafla úr nýjustu skáldsögu sinni, Sendiherranum, með áhrifamiklum inngangsorðum og Ólöf Arnalds og Wilhelm Anton Jónsson heilluðu fundarmenn með tónlist sinni. Samkomunni lauk með tilþrifamikilli endurkomu XXX Rottweilerhunda sem hafa bersýnilega engu gleymt og gáfu ekkert eftir. Kynnirinn Davíð Þór Jónsson hélt svo utan um samkomuna traustum höndum. Að fundinum stóðu Samtök hernaðarandstæðinga, MFÍK, Þjóðarhreyfingin – með lýðræði, Ung vinstri græn og Ungir Jafnaðarmenn.
Víða um heim hafa verið öflugar mótmælaaðgerðir gegn stríðinu á undanförnum dögum. Í Washington létu menn kalsaveður og slyddu laugardaginn 17. mars ekkert á sig fá en marséruðu tugþúsundum saman að Pentagon. Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælaaðgerðum í Los Angeles og San Francisco auk tugþúsunda manna á meira en 1000 stöðum víðsvegar um Bandaríkin. (Sjá A.N.S.W.E.R., March On Pentagon og United for Peace and Justice).
Í Danmörku voru útifundir í Kaupmannahöfn, Árósum, Óðinsvéum og Rönne (sjá Nej til krig), í Stokkhólmi mættu 2-3000 manns á útifund en einnig voru aðgerðir í Gautaborg, Málmey, Uppsölum og fjölda smærri bæja (sjá Mot krig). Á Írlandi voru mótmæli gegn stríðinu og bandarísku herstöðinni á Shannon-flugvelli (Irish Anti War Movement) og í Belgíu stóðu nokkur samtök að aðgerðum á sunnudaginn (Stop USA, Coordination Nationale d’Action pour la Paix et la Démocratie, Mother Earth). Á Ítalíu voru fjölmennar aðgerðir (Confedarazione Cobas) og í Aþenu tóku um 6000 manns þátt í útifundi sem samtök gegn stríði stóðu fyrir. Tugir þúsunda tóku þátt í aðgerðum í Madrid (sjá frétt) og fundir voru einnig í fjölmörgum öðrum borgum á Spáni. Á ótal öðrum stöðum voru mótmælaaðgerðir, Ungverjalandi, Ástralíu, Tyrklandi, Kýpur, Suður Kóreu, Chile og Írak svo fátt eitt sé talið.
Í London stóð Stop the War Coaliton fyrir almannaþingi þriðjudaginn 20. mars þar sem stríðið og þátttaka Breta í því var rædd (sjá Socialist Worker).
Rétt er að geta þess að 27. janúar voru fjölmennar mótmælaaðgerðir í Washington gegn stríðinu og sömuleiðis í London 24. febrúar.
Sjá einnig Myndir utan úr heimi.